156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:46]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Já, Evrópa er góður bandamaður. Að hverju leitar maðurinn í góðum bandamanni? Einhverjum sem stendur fyrir sömu gildi og maður sjálfur. Ísland sem smáríki, sem reiðir sig á fullveldi, sjálfstæði, alþjóðalög, virðingu í samskiptum ríkja, mannréttindi, á náttúrulegan bandamann í Evrópu, þar með talið Norðurlöndum sem eru okkar nánustu systurþjóðir. Ég hef sannfæringu fyrir því að saman, og þá er ég ekki bara að tala um Ísland, ég er reyndar líka að tala um Noreg þótt ég ætli ekki að blanda mér í þeirra innanríkismál, yrðu þau bara töluvert afl inni í Evrópusambandinu eins og þau eru nú þegar sameiginlega orðin ásamt Eystrasaltsríkjunum á vettvangi NATO. Ég held hins vegar að forgangsröðun okkar varðandi fjármuni eigi að vera á borgaralega þáttinn og gistiríkisþáttinn, á netöryggi, fjölþáttaógnirnar, en síðan það að vera góður bandamaður til austurs og vesturs.