156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:47]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Degi B. Eggertssyni fyrir ræðuna. Sjálfur var ég í lestarferð í Balkanlöndunum um alla Evrópu sumarið 1990, nokkrum mánuðum áður en stríðið hófst á Balkanskaga. Það var skrýtið að koma við í Belgrad á þeim tímapunkti þar sem var allt frekar grátt og stemningin ekki góð.

En varðandi síðan þennan þátt um Evrópusambandið og að Ísland fari í Evrópusambandið út af því er varðar varnar- og öryggismálin, þá vil ég enn á ný að endurtaka það sem kom fram í fyrirspurnatíma á Rose-Roth ráðstefnu í Helsinki í október 2022 þar sem Pekka Haavisto, fyrrverandi utanríkisráðherra Finnlands, var spurður að því af hverju Finnar væru á þeim tímapunkti búnir að sækja um að ganga í NATO. Og svarið var: Við treystum ekki á 42. gr., punkt 7, í Lissabon-samkomulaginu varðandi varnir og öryggi. Við verðum að komast í NATO, var svarið. Sænski sendiherrann staðfesti á sama fundi það sama fyrir Svíþjóð, þ.e. hugsunarháttinn á bak við það að fara inn í NATO. Í dag eru 23 af 27 Evrópusambandsríkjum í NATO. Það eru bara Malta og Kýpur, Írland og Austurríki sem eru ekki í NATO af Evrópusambandsríkjunum. Og þegar verið er að skoða fjárveitingar til varnar- og öryggismála á síðustu árum þá hafa þessi 23 Evrópusambandsríki af 32 ríkjum núna í NATO — þá hafa fjárveitingarnar verið um 20% af heildarfjármagni sem rennur til varnar- og öryggismála innan NATO, svona til að koma inn á þennan þátt í þessu fyrra andsvari. Ég held að það sé mikilvægt að við ruglum þessum ekki saman í umræðu um varnar- og öryggismál á þessum tímapunkti heldur tökum þetta heildstætt hvernig aðrar þjóðir hafa verið að hugsa. Svo getum við tekið „Zeitenwende“ og hvað gerðist í Þýskalandi þrem dögum eftir innrás Rússa í Úkraínu.