156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[20:50]
Horfa

Dagur B. Eggertsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir andsvarið. Þetta er bara allt eðlilegur hluti af umræðunni. Finnar og Svíar vildu vera í NATO til að styrkja varnir sínar en það var þó áður en einhver setti spurningarmerki við hvort 5. gr. í Atlantshafssáttmálanum gilti varðandi Eystrasaltsríkin, þannig að þessi mál eru einfaldlega á fleygiferð og því verður aldrei haldið fram með rökum að það hafi ekki verið nein öryggispólitísk viðhorf sem leiddu m.a. til þess að Finnar sóttu um aðild að Evrópusambandinu. Það var klárlega til að melda sig þeim megin í heimsmyndinni. Þannig er það ekki með neina þjóð að þú gengur í Evrópusambandið út af öryggis- og varnarmálum einum og sér eða sem slíkum, heldur til þess að vera hluti af þessu bandalagi Evrópuþjóða sem vinna saman á fjölmörgum sviðum. Við erum auðvitað þátttakendur á alveg geysilega mörgum en það er dálítið umhugsunarefni að þau svið sem við eigum í hvað mestum samskiptum diplómatískt við Evrópusambandið um þessar mundir eru varnar- og öryggismál, eru tollamál, sem sagt málin sem eru með þeim örfáu sem eru utan við EES-samninginn. Þetta er bara hluti af því sem er að gerast í heiminum og við verðum bara, sama hvernig við höfum meldað okkur á bás í Evrópuumræðunni á undanförnum árum, að taka þetta inn í eitthvert heildarhagsmunamat þegar um að ræða þetta. Við eigum að dýpka skoðun okkar (Forseti hringir.) á þessum hlutum og greina þá og leggja það síðan fram til umræðu fyrir þjóðina.