utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Frú forseti. Ég þakka síðara andsvar. Þetta er alveg rétt og bara mjög eðlilegt þegar einhverjir eru í miðju aðildarferli. Það gekk nú á ýmsu við að fá aðild að NATO fyrir Finna og Svía, sérstaklega Svía, og þess vegna skipti máli að NATO fyndi að það væru full heilindi á bak við það og ég hef aldrei leyft mér að efast um það vegna þess að ég hafði frá fyrstu hendi samtöl við fólk sem var í innsta hring í stjórnmálum í þessum löndum. En gleymum því ekki að Danir stigu það skref að fara hvorki meira né minna en í þjóðaratkvæðagreiðslu um það að falla frá undanþágu varðandi varnar- og öryggishluta Evrópusamstarfsins af í raun sama tilefni; innrás Rússa í Úkraínu. Ég held að það sé bara skynsamlegt að hugsa NATO sem stóra sterka varnarbandalagið, (Forseti hringir.) og vonandi heldur það áfram þannig, en að það sé skynsamlegt líka (Forseti hringir.) að vera í því samstarfi á sviði varnar- og öryggismála sem er á vettvangi Evrópu í mörgum myndum, m.a. innan ESB.