utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég verð að koma inn í þessa ástarumræðu milli Samfylkingar og Viðreisnar um ágæti ESB. Hér á dagskrá er skýrsla utanríkisráðherra um utanríkis- og alþjóðamál fyrir árið 2024, en ég heyri að bæði hæstv. ráðherra og hv. þingmenn hafa gert þetta að almennri umræðu um utanríkismál og ætla ég að leyfa mér, virðulegur forseti, að gera hið sama. Ég vil þá ítreka það sem ég hef nokkrum sinnum sagt í ræðustól, ég held að það sé ofboðslega mikilvægt að hæstv. utanríkisráðherra flytji hér reglulega munnlega skýrslu svo hægt sé að eiga samtal við þingið. Ég vildi óska að við hefðum gert meira af því til að mynda á síðasta kjörtímabili. Ég held að við eigum að draga lærdóm af því og þess vegna er þetta sagt af góðu einu. Ég held að það sé mikilvægt, mikilvægt fyrir hæstv. ráðherra og þingheim allan, að við eigum milliliðalaus samskipti um þetta.
Virðulegur forseti. Ég sé ekki hæstv. ráðherra en ég sé að taskan er enn þá hérna og ég treysti því að hún sé enn í húsi. Ég vona að ég eigi ekki að taka þetta þannig að hæstv. ráðherrar Viðreisnar vilji ekki hlusta á ræður mínar og fara í andsvör eftir umræðu dagsins í dag, kannski sérstaklega af því að ég ætlaði að byrja á því að hrósa hæstv. ráðherra. Þá er illa farið með gott hrós ef hæstv. ráðherra heyrir það ekki. En ég ætlaði að hrósa hæstv. ráðherra fyrir framgang sinn, sérstaklega er varðar stuðning við Úkraínu. Ég hef verið mjög ánægð með að sjá hæstv. utanríkisráðherra fara til að mynda í sína fyrstu heimsókn til Úkraínu og halda uppi okkar öfluga málflutningi um stuðning Íslands og stuðning Norðurlandanna við Úkraínu vegna þess að það er það rétta að gera. Það er það eina rétta að gera í þeirri stöðu sem þar er uppi. Þetta er ofboðslega klippt og skorið. Hver réðst inn? Rússar réðust inn í Úkraínu. Þetta er ólöglegt stríð. Þetta er brot á öllum alþjóðalögum. Það er svo nauðsynlegt að við tölum skýrt um þetta. Hér hefur verið talað um það hvort NATO sé okkar helsta vörn eða samningurinn við Bandaríkin og sumir vilja meira að segja ganga það langt að við þyrftum einhvern veginn að fara í Evrópusambandið til að tryggja varnir Íslands. En ég vil meina það að fyrsti varnarpunktur Íslands sé auðvitað bara að lönd virði alþjóðalög. Það er það sem utanríkisstefna okkar hefur svolítið byggt á, að alþjóðalög séu virt. Séu þau ekki virt þá erum við auðvitað í þessu mikilvæga varnarbandalagi sem NATO er og erum með varnarsamning við Bandaríkin.
Að því sögðu þá langar mig líka að leggja áherslu á það að norrænt samstarf sé í fyrsta sæti. Þar eigum við okkar bestu félaga, frændur og bræður á hinum Norðurlöndunum. Ég hygg að norrænt samstarf hafi alltaf verið mikilvægt fyrir íslenska þjóð og íslenskan almenning. En ég vil líka meina að norrænt samstarf eigi að vera mikilvægasta samstarfið okkar, líka á tímum sem þessum. Þegar ég segi norrænt samstarf þá á ég auðvitað við samstarf við öll Norðurlöndin og ég ætla að fá að nefna sérstaklega hér vini okkar og frændur hér allra næst, Grænland og Færeyjar, og mikilvægi þess að við höldum uppi þessu vestnorræna samstarfi og eigum gott samstarf við þessar þjóðir. Þess vegna fagna ég mjög að hæstv. forsætisráðherra hafi verið viðstaddur fund í Færeyjum þar sem verið var að ræða öryggi á Norður-Atlantshafi og ef ég hef tekið rétt eftir þá voru þar líka forsætisráðherrar Grænlands og Færeyja ásamt danska forsætisráðherranum, íslenska og svo sá norski í fjarfundi. Þetta reyndar leiðir mig að því að mér fannst líka mjög sorglegt, hér eftir fyrstu umræðuna um Grænland og núna eftir að Trump tók við aftur, þegar það átti sér stað sögulegur fundur milli norrænu forsætisráðherranna og íslenski forsætisráðherrann var ekki við borðið. Mér fannst það mjög miður og ég hef rætt það hér áður. Mér finnst ofboðslega mikilvægt að í öllu norrænu samstarfi þá séum við virkir þátttakendur og ég tala nú ekki um þegar það tengist okkar helstu nágrönnum, Grænlandi og Færeyjum.
Öryggis- og varnarmálin eru auðvitað stærsti málaflokkurinn sem við eigum að hafa áhyggjur af á þessum tímum og það er ekki síst þess vegna einmitt sem ég hef kallað eftir samtali við hæstv. utanríkisráðherra, sem er nú mættur í hliðarherbergi núna. Það er svo mikilvægt að hæstv. ráðherra hafi góðan og breiðan stuðning hér úr þessum sal þegar hæstv. ráðherra fer á erlenda grund og ræðir þessi mikilvægu mál. Ég fagna mjög að það sé búið að skipa strax starfshóp, þverpólitískan starfshóp, sem er að fara yfir það. Ég á ekki sæti þar en ég óska þeim góðs gengis og vænti bara mjög góðrar umræðu um þau mikilvægu mál þegar þau koma til þingsins.
Hér í umræðunni áður hefur verið rætt um Evrópusambandið í þessu samhengi og sumir vilja meina að það séu einhvern veginn auknar varnir fólgnar í því að Ísland gangi í Evrópusambandið. Ég er því ósammála. Mér finnst alveg ástæða til þess að við getum rætt það málefnalega og yfirvegað. Ég hygg að Svíar og Finnar hafi ekki fundið það öryggi sem þeir töldu sig þurfa á að halda innan Evrópusambandsins, enda eru þeir þar, þess vegna einmitt gengu þeir í NATO því NATO er mikilvægt varnarbandalag. En hér áðan kom upp umræðan um hvort það ætti að flýta þessari þjóðaratkvæðagreiðslu sem hæstv. ríkisstjórn hefur sett hér á dagskrá og sitt sýnist hverjum í þeim efnum. Mér finnst alla vega mjög mikilvægt að umræðan hjá stjórnmálamönnum verði ekki með þeim hætti að það sé með einhverjum hætti verið að hræða íslensku þjóðina inn í Evrópusambandið. Meira að segja ég get sagt að það er örugglega hægt að finna einhverja kosti við Evrópusambandið og inngöngu í Evrópusambandið þó að ég telji hagsmunum Íslands miklu betur borgið utan þess með þeim mikilvæga samningi sem við eigum, EES-samningnum. Þess vegna brýni ég hæstv. ráðherra líka í því að við þurfum að halda vel utan um þann samning og ég er alveg sammála því sem fjallað er um í skýrslunni hvað það varðar. Það er í mínum huga okkar allra mikilvægasti alþjóðasamningur og að honum þurfum við að huga. Ég hygg í rauninni að Ísland sé það vel sett með þessu nána og góða samstarfi sem við eigum við Evrópusambandið í gegnum EES-samninginn og með því svo að vera í NATO og með því að vera í alls konar Evrópusamstarfi þá séum við í rauninni að fá það besta sem hægt er að fá úr samstarfinu við Evrópu án þess þó að ganga að fullu inn og taka þátt í þessu sem ég vil gjarnan nefna ákveðið bákn, af því að því miður hefur Evrópusambandinu tekist að flækja ýmis mál, gera þau mun flóknari og erfiðari en þau nauðsynlega þurfa að vera.
En tíminn líður hratt og ég er komin að mínum uppáhaldsmálaflokki, kannski fyrir utan norræna samstarfið sem ég vil alltaf setja í fyrsta sæti, það eru norðurslóðamál. Ég hjó eftir í andsvari við hæstv. ráðherra að þau mál komu aðeins upp og ég verð að segja að ég hef ofboðslegar áhyggjur af norðurskautinu. Ég hygg að helsta ógnin okkar komi frá norðurslóðum. Þá er ég auðvitað að velta upp hernaðarlegum ógnum en ekki síður alls konar ógnum er varða hafið og umhverfisbreytingar. Það er miður að okkur hefur einhvern veginn ekki tekist að finna samstarfsvettvang í kringum það. Ég mun ekki leggja það til að ráðherrar fari aftur að setjast við borðið í Norðurskautsráðinu. Ég veit að Norðmenn lögðu sig mikið fram í sinni formennsku að halda ráðinu á lífi, reyna að halda uppi því vísindasamstarfi sem á sér stað í gegnum ráðið, sem er auðvitað bara grunnurinn að þessu ráði öllu saman. Það verður að segjast að ég held að það sé bara hreinlega í dag sem Danir eru að taka við formennskunni — ekki Danir, einmitt ekki Danir heldur Konungsveldið Danmörk er að taka við formennsku í Norðurskautsráðinu. Sem betur fer, reyndar eftir mjög mikla baráttu Grænlendinga, hefur þeim lánast að setja Grænlending þar inn og setja Grænland í oddaaðstöðu því það er auðvitað þannig að ef einhver þekkir lífið á norðurslóðum þá eru það Grænlendingar klárlega. Við ræddum hér oft á árum áður mikilvægi þess að það væri líka verið að ræða öryggis- og varnarmál í Norðurskautsráðinu. Það var algjört „no-no“ umræðuefni á þeim vettvangi. Ég í rauninni bara velti því upp hvernig er mögulega hægt að halda einhvers konar lífi í þeim vettvangi eins mikilvægur og hann er. En augljóslega þurfa hin norðurslóðaríkin, norðurskautsríkin sem virða alþjóðalög, að eiga líka samtal um varnir og öryggismál á norðurslóðum og þar hygg ég að Ísland og hin Norðurlöndin (Forseti hringir.) geti verið ofboðslega mikilvægur vettvangur svo við lokumst einhvern veginn ekki á milli risahagsmunaaðila og stórvelda, Bandaríkjanna og Rússa sem kannski mögulega bakka upp að Kínverjum.