156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:06]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og metnaðinn í þessum málaflokki, bæði núna og í gegnum tíðina. Ég vil líka þakka fyrir hrós fyrir að styðja við Úkraínu, nema hvað, og um leið vil ég líka draga fram að ég er ánægð með þá tóna og þær áherslur sem hafa verið lagðar fram af hálfu þingmanna Sjálfstæðisflokksins hér í dag varðandi stuðningi við Úkraínu. Það er ekkert sjálfgefið. Það er verið að spyrja okkur spurninga og ég greini einhverjar efasemdir meðal annarra flokka í stjórnarandstöðunni þannig að ég fagna sérstaklega þessum áherslum frá Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að stuðningi við Úkraínu, enda mikið þar undir, bæði fyrir Úkraínu, öryggi Evrópu og þá um leið okkar. Það sem ég vildi líka draga fram — ég er ekki komin í ræðu en ég þakka samt fyrir níu mínúturnar í andsvar sem ég fæ hér — og vil aðeins beina sjónum að EES-samningnum af því að hv. þingmaður ræddi hann. Ég tek svo heils hugar undir það, þetta er auðvitað mikilvægasti milliríkjasamningur eða fjölþjóðasamningur sem við höfum gert, hefur haft gríðarlega mikil áhrif og jákvæð á íslenskt samfélag, ýtt okkur svona inn í opið, frjálst markaðskerfi, það er búið að setja á okkur þannig kröfur að við þurfum að standast samkeppnislög o.s.frv., gríðarlega jákvæð áhrif. Það sem mér finnst hins vegar skipta mestu máli núna í öllu þessu róti, af því að við erum ekki enn þá í Evrópusambandinu, er að standa vörð um EES-samninginn og við finnum það alls staðar, líka í hugsanlegu tollastríði milli Bandaríkjanna og Evrópu, sem ég vona að verði nú ekki af. Hluti af því að styðja við EES-samninginn er m.a. að standa við þær skuldbindingar sem fylgja honum, m.a. bókun 35. Það vakti athygli mína að ekki báðir fulltrúar Sjálfstæðisflokksins studdu það að taka bókun 35 út úr utanríkismálanefnd. (Forseti hringir.) Má engu að síður ekki treysta því að Sjálfstæðisflokkurinn, þó að hann sé með skiptar skoðanir varðandi bókunina sem slíka, að það verði samt staðið með samningnum og staðið með bókuninni?