utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Já, ég hrósaði henni hér og mér finnst að við eigum að eiga þannig samskipti hér að við eigum að hrósa fyrir það sem er vel gert. Ég vil bara taka það fram að mér finnst hæstv. ráðherra hafa staðið sig mjög vel í mörgum af sínum störfum og sérstaklega hvað það varðar að fylgja eftir stuðningnum við Úkraínu. Ég vildi líka bara, ef hæstv. ráðherra hefur ekki heyrt það, leggja áherslu á það að hún eigi eins oft og mögulega hægt er milliliðalaus samskipti við þingið, einmitt til að fá aukinn stuðning við þær yfirlýsingar og þær aðgerðir sem við tökum þátt í, hvort sem þær varða Úkraínu eða aðra þætti.
Hæstv. ráðherra minntist á EES-samninginn og mikilvægi þess að við stæðum vörð um hann, sem ég fór einmitt yfir í ræðunni minni. Ég vil bara meina að þetta sé okkar lykilsamningur. Ég held að þetta sé lífæð íslensks atvinnulífs og hann sýnir svo um munar að íslenskt atvinnulíf þarf á því að halda að geta átt greiðan aðgang að mörkuðum erlendis. Ég held að það sé ágætlega fjallað um það í skýrslunni að við vorum einu sinni fátækasta þjóðin í Evrópu, það er reyndar í umfjölluninni um þróunaraðstoð, og við þurfum að muna það núna, einhverjum 100 árum seinna, þegar við erum ein af ríkustu þjóðum í Evrópu. Ég hygg að ástæðan fyrir því sé m.a. EES-samningurinn og okkar grunnatvinnuvegir þar sem okkur hefur tekist að framleiða hágæðavörur og koma þeim á markað. Með þessu er ég að skjóta örlítið á hæstv. ráðherra og ríkisstjórn hans vegna þeirra skattaaðgerða sem þau hafa boðað gagnvart grunnatvinnuvegunum. Og einmitt af því að hæstv. ráðherra nefnir hér tollastríðið þá vil ég líka gjalda varhuga við því. Við þurfum að standa vörð um grunnatvinnuvegi okkar, við eigum allt undir okkar utanríkisviðskiptum sem byggja að mörgu leyti á EES-samningnum en auðvitað fyrst og fremst á okkar frábæru fyrirtækjum, nýsköpun, markaðs- og söluleyfum. Þannig að ég vil minna hæstv. ráðherra á það. Ég styð bókun 35 og hef lýst því yfir og ég veit að hæstv. fyrrverandi utanríkisráðherra, hv. þm. Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,(Forseti hringir.) hefur gert það líka. Ég bara þekki ekki til þess hvort fulltrúi Sjálfstæðisflokksins (Forseti hringir.) hafi ákveðið að vera ekki á nefndarálitinu eða hreinlega hafi verið fjarverandi.
(Forseti (KGH): Ég minni hv. þingmenn og hæstv. ráðherra á að virða ræðutímann.)