156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:11]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að skynja eindrægni hv. þingmanns þegar kemur að því að standa vörð um EES-samninginn og hluti af því er náttúrlega að taka ákvarðanir sem kunna að vera erfiðar. En við þurfum samt að taka til þess að passa upp á þennan mikilvæga milliríkjasamning. Ég ætla ekki að fara að tala um veiðigjöldin að öðru leyti en því, af því að við erum að tala svolítið um Noreg hérna, að ef maður horfir til Statoil, eða hvað fyrirtækið heitir núna í dag, þá greiðir það mjög eðlileg, skýr og frekar há auðlindagjöld en það hefur ekki takmarkað það fyrirtæki að stækka og eflast. Íslenskur sjávarútvegur nýtur gríðarlega góðs af því að við — þegar ég segi við þá á ég við ríkisstjórnir í gegnum síðustu árin og áratugina — höfum passað upp á að hafa markaðina opna. Ég hefði gjarnan viljað sjá þá enn þá opnari en við vitum það líka að á móti koma skuldbindingar eins og t.d. gagnvart Evrópusambandinu. Það vantar nýjustu afurðirnar, framleiðsluna, inn í þetta. Við þurfum að uppfæra okkur þar, eins gagnvart Bretlandi. En á móti þá þurfum við að taka þessa prinsippákvörðun: Eigum við þá að slaka á í landbúnaðarafurðunum á móti? Það er m.a. þetta sem er verið að ræða í þessum viðskiptasamningi á milli Bandaríkjanna og Breta, hvaða áhrif þetta hefur og á hvaða atvinnugreinar. Það skiptir máli fyrir okkur Íslendinga. Mikilvægast fyrir okkur er einmitt að halda mörkuðum opnum, að, tollar séu ekki til staðar þannig að nýsköpun og atvinnugreinar fái þrifist í slíku opnu umhverfi.

Mig langar örstutt í lokin að nefna samt risamál varðandi varnarmálin og ég þakka hv. þingmanni fyrir að nefna þau. Það skiptir máli þegar við erum á fundum úti, hvort sem það er með NATO, utanríkisráðherrum eða varnarmálaráðherrum eða JEF eða NORDEFCO eða hvað það er, að segja: Við erum að móta þvert á alla flokka, allir koma að af því að þetta er risahagsmunamál, nýja varnar- og öryggisstefnu. Það hefur mikið að segja að sú áhersla er lögð, (Forseti hringir.) við erum að bæta við okkur verulega þegar kemur að framlögum til varnarmála og stuðningi við Úkraínu, (Forseti hringir.) við erum að taka þessi mál föstum tökum. Þá er ég ekki bara að tala um og hampa ríkisstjórninni heldur dreg ég fram hvað það er mikilvægt að hafa skilning allra flokka á því að vera fullir þátttakendur í Atlantshafsbandalaginu.