156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:15]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir bara mjög góða innkomu inn í þennan málaflokk sem ég held að okkur greini ekki á um í grundvallaratriðum, sem eru Norðurlöndin. Við eigum auðvitað farsælt samstarf í Íslandsdeildinni og ég er svo lánsöm að vera hér með fyrrverandi forseta Norðurlandaráðs í þeirri vinnu sem er núna fyrir höndum á þeim vettvangi þar sem yfirskriftin er „Seigla og viðnámsþróttur“. Við vinnum þetta bara nokkuð skarpt í samstarfi við okkar góðu félaga á þeim vettvangi.

Ég vildi nota tækifærið og spyrja annars vegar um það hvernig hv. þingmaður sér fyrir sér að við getum gert betur í Íslandsdeildinni til þess einhvern veginn að hefja samtalið um varnarmál til vegs og virðingar á þessum vettvangi, sérstaklega í ljósi þess að áherslan var þetta mikil á þennan málaflokk á fyrra forsetatímabili sem Ísland fór fyrir. Þar var dálítið mikill fókus á frið og við vitum auðvitað að það er og verður viðfangsefni okkar að tryggja frið, til þess er nú einu sinni ferðin farin. En hérna nefni ég sérstaklega til sögunnar NORDEFCO sem við funduðum reyndar með úti í Helsinki eða fulltrúum, það voru finnskir fulltrúar sem komu þar og ræddu um möguleika okkar til að þétta samstarfið innan NORDEFCO.

Ég vil síðan í framhaldinu fá að spyrja hv. þingmann, af því að hér er minnst á Evrópusambandið og ég get svo heils hugar tekið undir það með hv. þingmanni að við eigum ekki láta hræða okkur inn í Evrópusambandið. Það væri versta mögulega niðurstaða fyrir íslenskt samfélag að við færum inn í þessa atkvæðagreiðslu á einhverjum hræðsluáróðri. En af því að ég kom aðeins inn á það í minni ræðu áðan: Er ekki kominn tími til að byrja að vinna og hefja samtalið og á þá mögulega efnahagslegum forsendum frekar, ég hef svolítið talað fyrir því, vegna þess að við vitum að við erum að fara í þessa atkvæðagreiðslu?