156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:17]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið og einmitt tækifæri mitt til að ræða þetta aðeins, af því að hv. þingmaður minnist hér á norrænt samstarf þar sem við sitjum saman í Íslandsdeild Norðurlandaráðs og varðandi varnarsamstarfið. Ég ætla bara að segja að það er öskrandi áhugi, öskrandi áhugi hjá norrænum þingmönnum að ræða um samstarf á sviði varnar- og öryggismála. Og þegar ég tala um varnar- og öryggismál þá á ég við hefðbundnar varnir og hefðbundin öryggismál en líka svona samfélagsöryggismál, alveg eins og hv. þingmaður nefnir hér, seiglu og viðnámsþrótt, samstarf sem fór svolítið forgörðum í Covid en við eigum að hafa lært af og er samstarf sem við eigum að vinna og sinna miklu, miklu betur. Við getum haft miklu nánara samstarf og það er hlutverk okkar þingmanna að lemja svolítið á, fyrirgefið orðalagið, hæstv. ráðherrum um aukið samstarf því að það er mikill vilji meðal norrænna þingmanna.

Þá kemur að því sem ég náði ekki að segja frá í ræðunni minni en ég þakka hv. þingmanni fyrir að gefa mér tækifæri til að segja það núna. Ég hjó eftir því í skýrslunni að það er talað aðeins um íslenskan her og sagt að það standi ekki til að stofna slíkt. Ég skil það mjög vel. Ég held að það séu engir burðir á Íslandi til að stofna her, en ég hef aftur á móti talað fyrir norrænum her. Og af hverju tala ég fyrir norrænum her? Það er mikið varnarsamstarf nú þegar þó að það sé svona mismikið formgert, en það er töluvert samstarf til að mynda milli flugherjanna. Það er verið að tala um innkaup á búnaði fyrir aðrar herdeildir. Það er töluvert samstarf á milli Norðurlandanna sem reka her. Ég vil að Ísland sé raunverulegur þátttakandi í því samstarfi. Við erum það auðvitað að einhverju leyti í gegnum NORDEFCO en ég held að við gætum lagt meira til. Þá vil ég minna á fyrirspurn sem ég hef lagt fram til hæstv. utanríkisráðherra þar sem ég hef spurt hvort við höfum einhverja yfirsýn yfir þá Íslendinga sem hafa hlotið herþjálfun. Ég bíð spennt eftir þessu svari því að ég held að þetta skipti máli. Ég held það skiptir máli að við höfum einhverja yfirsýn yfir þá þekkingu sem íslenskir ríkisborgarar kunna að búa yfir og þá þjálfun sem þeir kunna að hafa fengið hjá erlendum herjum.