156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:22]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir hennar ræðu. Mig langar að eyða kannski nokkrum sekúndum af mínum ræðutíma hér til þess að hrósa núverandi hæstv. utanríkisráðherra og líka þeim sem hún tók við af, Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, sem var hæstv. utanríkisráðherra hér á undan, fyrir þeirra störf sem utanríkisráðherrar. Ég held að það skipti verulegu máli hvernig við höfum komið fram sem þjóð og hvernig þær hafa komið fram fyrir okkar hönd sem þjóð hvað varðar Úkraínu. Jafnframt hafa hæstv. utanríkisráðherra verið nokkuð ákveðnar varðandi afstöðu til ófriðarins á Gaza-svæðinu.

Það sem hefur komið fram hér er það að Svíar og Finnar hafi ekki talið að þeirra varnarmálum væri nægilega vel fyrir komið innan Evrópusambandsins. Þetta tengist svolítið því þegar við erum að velta fyrir okkur hvort það sé einhver hætta á því að við verðum hrædd inn í Evrópusambandið. Auðvitað er það bara þannig að þegar við tökum afstöðu til einhverra álitaefna þá eru ýmis atriði sem eru þar til skoðunar. Það geta verið efnahagsleg atriði, það geta verið öryggisleg atriði og einhver önnur atriði til viðbótar. Þannig að þegar hver og einn einstaklingur tekur ákvörðun um það hvaða afstöðu hann hefur lítur hann væntanlega til fleiri en eins atriðis þegar hann gerir upp hug sinn. Í mínum huga er mikilvægt að við getum horft til fleiri en einnar og fleiri en tveggja stoða þegar við hugsum um öryggis- og varnarmál og mig langar að beina þeirri spurningu til hv. þingmanns hvort það sé ekki einmitt gott ef við getum með einhverjum hætti — og nú set ég þennan varnagla að það þarf ekki endilega að vera með inngöngu í Evrópusambandið heldur getur það verið með auknu samstarfi við Evrópuríkin á sviði varnarmála — skotið þriðju stoðinni undir varnar- og öryggismál þannig að við séum enn öruggari en áður.