156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:24]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og tek undir hrós hans til bæði núverandi hæstv. utanríkisráðherra og fyrrverandi. Mér finnst þær hafa staðið sig báðar mjög vel í að tala máli Úkraínu eins og ég sagði áðan, vegna þess að það skiptir máli. Það er líka mjög mikilvægt að það sé haldið áfram að þora að tala og tjá sig þegar það er orðið óvinsælt hjá þjóðinni. Þá þurfum við að muna það og öll sem deilum þeirri sýn.

Þegar kemur að umræðu um Evrópusambandið og svo tengt öryggismálum þá verð ég að viðurkenna að ég hef svolítið takmarkaðan skilning á því hvert fólk er að fara í þeim efnum. Ég sagði hér áðan að það er alveg augljóst að Svíum og Finnum fannst ekki Evrópusambandið vera sú vörn, sú öryggislega vörn sem þeir þurftu á að halda heldur gengu þeir til liðs við NATO. Svíar og Finnar höfðu auðvitað unnið töluvert með NATO-herjum fyrir það en það er alveg augljóst að þeir litu ekki á það sem einhvers konar varnarbandalag að vera í Evrópusambandinu.

Ég er hlynnt Evrópusamvinnu. Ég er bara hlynnt mjög miklu alþjóðastarfi og mér finnst mjög mikilvægt að við séum virk í því starfi. Þess vegna horfi ég á EES-samninginn sem okkar allra mikilvægasta samning og sagði hér áðan að við erum í ýmiss konar öðru Evrópusamstarfi líka.

Af því að hv. þingmaður kemur inn á þriðju stoðina þá vil ég í rauninni segja að bara virðing fyrir alþjóðalögum sé fyrsta stoðin okkar. Önnur stoðin sé þá varnarbandalagið NATO, sem er auðvitað bara fælingarmáttur, og svo varnarsamstarfið við Bandaríkin. Ég er mjög hlynnt því að við vinnum með öllum þeim þjóðum sem við samsvörum okkur með, sem deila okkar hugmyndum um mannréttindi, um alþjóðaöryggi, alþjóðalög og annað þess háttar, hvort sem það eru einstök ríki Evrópusambandsins, Evrópusambandið allt, Bretland, Bandaríkin, Kanada eða hvað það er. Þannig að ég bara segi það enn og aftur og mér finnst það mjög mikilvægt að umræðan um Evrópusambandið og mögulega inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé ekki (Forseti hringir.) drifin áfram af hræðsluáróðri út af einhverri stríðsógn eins og (Forseti hringir.) Evrópusambandið sé okkur einhvers konar varnarbandalag.