156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:27]
Horfa

Grímur Grímsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir svar við andsvari mínu. Af því að hv. þingmaður talar um virðingu fyrir alþjóðalögum sem stoð er það okkur auðvitað svo mikilvægt að alþjóðalög séu virt og við getum lagt okkar af mörkum til að sjá til þess að þau séu virt. En þegar ég tala um stoð þá er það eitthvað sem við getum haft mikil og almenn áhrif á. Það eru þær stoðir sem ég er að tala um.

En ég ætlaði að fara í allt annað í mínu seinna andsvari og það var varðandi norrænan her sem mér fannst mjög áhugaverð hugsun. Sér hv. þingmaður fyrir sér að þátttaka Íslands í slíkum her væri sjálfstæð íslensk þátttaka eða sér hv. þingmaður fyrir sér þennan norræna her sem sjálfstæðan hér ótengdan löndunum tveimur?