156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:28]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Aftur þakka ég hv. þingmanni andsvarið. Ég ætla aðeins að ítreka ástæðuna fyrir því að ég nefni alþjóðalögin sem fyrstu stoðina. Það er auðvelt að gera það á friðartímum en það er miklu erfiðara að gera það núna á tímum sem við upplifum sem eru ekki friðartímar þó að við séum ekki komin í stríðsástand. En ástæðan fyrir því að ég nefni það er vegna þess að einmitt þess vegna er svo mikilvægt að standa með Úkraínu, að standa ávallt með mannréttindum, að standa ávallt með alþjóðalögum og leggja áherslu á að þau séu virt í hvívetna, vegna þess að hagsmunir Íslands eru undir því að við séum sú rödd og tökum alltaf undir þann málstað. Þess vegna myndi ég segja að mögulega fjórða stoðin mín væri þessi norræni hér sem ég hef svolítið rætt um. Ég átta mig á því að ég er að tala inn í einhverja framtíð og ég veit um einhverja sem hefur dreymt um Evrópusambandið og hafa talað um Evrópuher. Hann hefur ekki orðið að veruleika og mér finnst frekar ósennilegt að Evrópuher verði einhvern tímann að veruleika. Mér finnst þó sennilegra að norrænn her gæti orðið að veruleika en ég held að ég sé (Forseti hringir.) fyrst og fremst núna að tala um fyrstu skrefin í því að við séum virkir þátttakendur í NORDEFCO, (Forseti hringir.) virkir þátttakendur í öllum samtölum varnarmálaráðherra og við mögulega getum lagt enn meira af mörkum en við erum að gera í dag.