utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka starfsfólki utanríkisþjónustunnar fyrir þessa skýrslu um utanríkis- og alþjóðamál fyrir árið 2024 og þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir að leggja hana fram og fyrir hennar ræðu hér fyrr í dag. Ég heyrði eitthvað af umræðunni, ég reyndar þurfti að fara úr húsi þannig að ég hef ekki heyrt alla þá umræðu sem fram hefur farið í dag. Það er raunar sérstök tilfinning að vera hérna megin borðsins þar sem ég veit hversu mikil vinna starfsfólks ráðuneytisins fer í að græja þessa skýrslu, hafandi verið við hinn endann borðsins nokkuð lengi. Ráðuneytið í heild og allar sendiskrifstofur Íslands koma að ritun skýrslunnar með einum eða öðrum hætti. Um hana er stofnuð ritnefnd sem ber ábyrgð á öllu efni og texta sem fer í endanlega skýrslu. Ekkert sleppur í gegnum nálarauga ritstjórans og þá á ég ekki við Snorra okkar Másson í þessu tilviki. Þar sem ég á það til að vera svolítill grallari þá setti ég eitt sinn inn texta sem frá mér fór í skýrslunni, óviðkomandi setningu þar sem ég lýsti fegurð Borgarfjarðar. Ritstjórinn auðvitað spottaði þetta og fjarlægði setninguna úr textanum. Já, stóðst hrekkinn og prófið með miklum sóma. Ég nefni þetta einungis til þess að leggja áherslu á fagmennskuna sem býr að baki þessari skýrslu og öðru sem starfsfólk ráðuneytisins vinnur.
Ég vil taka aðeins annan vinkil í byrjun ræðu minnar sem sjaldan er komið inn á í þessari umræðu um skýrslu utanríkisráðherra um alþjóða- og utanríkismál. Áður en ég held inn í utanríkismálin þá langar mig að ræða aðeins mannauðsmálin í utanríkisþjónustunni en ég gat ekki séð að inn á þau sé komið efnislega í skýrslunni sem við ræðum í dag. Þetta er um margt óvenjulegur vinnustaður þar sem stór hluti starfsmanna og fjölskyldur þeirra undirgangast svokallaða flutningsskyldu og flytja búferlum á tveggja til fimm ára fresti allan sinn starfsferil. Starfsfólk þjónustunnar vinnur oft mjög langa daga og skiptir engu máli hvaða vikudagur er, í alls kyns aðstæðum og færir miklar fórnir við að gæta hagsmuna Íslands og Íslendinga og er oft og tíðum fjarri sínum nánustu svo árum skiptir fyrir land og þjóð, alveg sama hvernig viðrar í heiminum. Um þetta er sjaldan talað, hvað þá leyft. Ég er stolt af því að hafa tilheyrt þessum hópi til margra ára og vil segja hér úr þessum stól að ég mun alltaf allan daginn standa með starfsfólki utanríkisþjónustunnar sem er frábært upp til hópa, frábært fólk.
Þótt ekki sé fjallað sérstaklega um mannauðsmál í skýrslunni sem við ræðum í dag, þá komu þau við sögu í öðrum texta sem lagður var fram á Alþingi um daginn, þ.e. í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Í textanum um utanríkismál þar þótti mér einmitt gott að lesa að hlúa þyrfti að mannauð utanríkisþjónustunnar. Það er nefnilega laukrétt. Þessu tengdu og með vísan til fyrrnefnds texta um utanríkismál í fjármálaáætlun þá langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvernig hlúð verði að mannauð utanríkisþjónustunnar. Hvernig verður þetta gert?
Og enn um mannauðsmál. Það hefur verið þekkt innan þjónustunnar um nokkurt skeið að ekki eru í öllum tilvikum greidd sömu laun fyrir sömu vinnu útsends starfsfólk á sendiskrifstofum erlendis og við heimkomu. Þetta snýr að greiðslu eininga ofan á grunnlaun og er raunar kannski of flókið til að eyða mörgum setningum á í stuttri ræðu en ég vildi vekja athygli hæstv. ráðherra á þessu. Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort henni sé kunnugt um þetta og hvort þetta eigi enn við rök að styðjast og ef svo er, hvort hún hyggist jafna og leiðrétta kjör starfsmanna þjónustunnar þegar á misræmi og jafnvel mismunun er bent, hvar sem starfsmaður eða starfsmenn starfa hverju sinni, heima eða heiman. Málið snýst í mínum huga um réttlæti og launajafnrétti og eins og ég hef heyrt til að mynda í veiðigjaldaumræðunni þá er það Viðreisn og ríkisstjórninni mikilvægt réttlætismál að leiðrétta það sem hún telur rangt gefið. Ef það er raunin þá langar mig að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hún er ekki sammála þessu.
Að öðru leyti vil ég verja þeim tíma sem ég hef í þessari umræðu í að fjalla um öryggis- og varnarmál. Það er ágætisyfirferð í skýrslunni um grunninn og verkefnin árið 2024. Við verðum að huga að stöðu Íslands í breyttri heimsmynd. Þá skiptir sköpum að við leggjum áherslu á hlutverk okkar sem herlaus friðsæl þjóð. Ísland þarf auðvitað að vera reiðubúið í samstarf við aðrar vestrænar þjóðir um varnarmál á öllum stundum. Það er mikilvægt að eiga traust samstarf við helstu bandamenn okkar um öryggi og varnir landsins, fullkomlega óháð því hvernig pólitískir vindar blása. Hvað varðar stríðið í Úkraínu þá er það án efa einlæg ósk okkar allra hér á Alþingi Íslendinga og mjög víða um heim að það taki enda sem fyrst og upp á síðkastið hefur glitt í að sá möguleiki gæti verið innan seilingar. Alla vega leyfi ég mér að vona það. Hann er a.m.k. ekki eins fjarlægur og hann var fyrir nokkrum mánuðum síðan. Ég vona að áætlaður fundur leiðtoga Úkraínu og Rússlands seinna í vikunni verði haldinn og að hann marki upphaf árangurs friðar og bjartari tíma.
Mig langar að spyrja hæstv. utanríkisráðherra þessu tengdu hvort einhver sviðsmynd hjá utanríkisráðuneytinu geri ráð fyrir að átökunum í Úkraínu ljúki. Staðan er auðvitað bæði viðkvæm og flókin og í flókinni stöðu þurfum við að tala varlega. Yfirlýsingagleði þarf að víkja fyrir ró og vel ígrunduðum ákvörðunum um næstu skref, alltaf í þágu íslenskra hagsmuna og þeirra grunngilda sem við höfum í heiðri. Það er auðvitað lykilviðfangsefni hverrar ríkisstjórnar að meta reglubundið með hvaða hætti efla megi fjárfestingar í eigin vörnum og þannig treysta frekar öryggi og varnir Íslands. Það hefur verið margrætt um grunnstefið í dag í öryggis- og varnarmálum sem er aðild Íslands að NATO eða Atlantshafsbandalaginu og tvíhliða varnarsamningur við Bandaríkin. Þetta eru stoðirnar en það er ein stoð sem ég vil segja að ætti að vera raunar þriðja stoðin sem eru almannavarnir sem heyra undir ríkislögreglustjóra í umboði dómsmálaráðherra og eru okkar innlenda akkeri á öllum tímum. Því verður að halda til haga í allri okkar öryggis- og varnarumræðu. Þetta eru borgaraleg verkefni sem aldrei verða neitt annað en borgaraleg þar sem við erum herlaust land og það þarf að taka með inn í allar breytur og vinnu.
Við sem eigum sæti í þingmannahópnum skipuðum af hæstv. utanríkisráðherra um öryggis- og varnarmál tökum okkar vinnu að sjálfsögðu alvarlega og erum meðvituð um ábyrgðina sem á okkur hvílir. Við viljum gera þetta vel. Okkur var settur þröngur tímarammi og ég tel hann vera eiginlega of þröngan. Í dag er 12. maí. Við hófum störf 1. apríl og eigum að skila af okkur 21. maí. Niðurstaðan á sem sé að liggja fyrir eftir níu daga og mér finnst verkið varla hafið, það er svo ótal margt sem við eigum eftir að fara yfir og ræða. Ég hef viðrað þessar áhyggjur innan hópsins og það hafa í raun og veru flestir þeirra viðmælanda sem við höfum rætt við á okkar fundum einmitt imprað á því að þessi tími sé of stuttur, þessi tímarammi sé óheppilega stuttur. Það er óljóst hvernig lokaskjal eða útfærslan verður, hvort form á niðurstöðu eða áfanga verði samhljóða eða hugsanlega í formi meirihluta- eða minnihlutaálits eða hvað. Slíkt liggur ekki fyrir. Ég spyr hæstv. utanríkisráðherra hvort hún telji ekki betra að við tökum aðeins lengri tíma í þessa mikilvægu vinnu þannig að við getum gert þetta betur. Ég held raunar að slíkt geti ýtt undir að við náum miklu betri og breiðari samstöðu og sátt um afurðina og það viljum við. Ég tel þess vegna mikilvægt að þingmannahópurinn fái lengri frest til að skila þessari viðamiklu vinnu af sér eða það verði sagt upphátt að skilin 21. maí verði einungis áfangi á lengra ferli. Það er mikilvægt að Alþingi fjalli um öryggis- og varnarmál Íslands reglulega og af meiri þunga en áður og í ljósi þeirra breyttu heimsmyndar sem blasir við.
Að lokum þetta: Ég velti því hér upp í umræðum um öryggis- og varnarmál fyrir nokkru síðan hvort tilefni sé til að skoða hvort á Alþingi verði sett á legg sérstök öryggis- og varnarmálanefnd þingsins sem væri helguð þessum málaflokki. Mig langar að endingu að spyrja hæstv. utanríkisráðherra hvort hún telji tímabært að stofnuð verði slík nefnd sem yrði mögulega ein af fastanefndum Alþingis.