utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna þótt ég verði nú að segja að það er alla jafna þannig að það eru fyrirspurnir, óundirbúnar fyrirspurnir, og síðan er hægt að fara í andsvör við ráðherra. Það breytir ekki því að ég vil gera það sem ég get til að reyna að svara öllum þessum spurningum hv. þingmanns. Ég tek undir það sem var sagt um m.a. starfsfólk ráðuneytisins, ábyrgðina og hæfnina sem er innan ráðuneytisins. Það er að mörgu að hyggja. Mannauðsmál eru náttúrlega alltaf mjög fyrirferðarmikil og þau eru í endurskoðun, mér skilst m.a. vegna fyrirspurnar um grunnlaun o.fl. og greiddar einingar. Það er verið að skoða það sérstaklega í tengslum við nýja stofnanasamninga. En líka er rétt að geta þess að ráðuneytið er með jafnlaunavottun og samkvæmt því kerfi meðal vinnustaða sem eru með hvað bestan árangur þegar kemur að því að greiða sömu laun fyrir sömu vinnu. Við erum að því svo það sé sagt. Þessi gagnrýni hefur í gegnum tíðina komið reglulega fram og við erum að vinna í því að breyta kerfinu fyrir launagreiðslur og staðaruppbætur, jafnvel nær það að taka gildi í næsta mánuði. Því er verið að skoða þetta, verið er að vinna að þessu og vonandi náum við að klára það.
Hitt er síðan varðandi öryggis- og varnarmálin. Það er risamál og auðvitað er þetta viðvarandi verkefni. Hér hefur líka verið talað um hvað Ísland sé lítið, hvað við erum snögg og náum að bregðast við með ýmsum hætti. Við eigum nákvæmlega að sýna það með þessu, af því að við höfum það mikla þekkingu og mikil samskipti við aðrar þjóðir, aðgang að upplýsingum o.fl. að við eigum að sýna þá snerpu sem við getum og samheldni þvert á flokka. Það er einstakt tækifæri núna sem blasir við innan þingsins til að fara í þessa vinnu. Ég vil um leið nýta tækifærið og þakka hv. þingmanni fyrir að taka þátt í vinnunni. Ég veit að hún hefur mikinn metnað í þessa veru, að þetta verði gert vel. (Forseti hringir.) En ég sé það líka á hópnum að ég treysti fáum betur til að gera þetta hratt og örugglega og í þágu íslenskra hagsmuna fyrir betri varnir og meira öryggi.