utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir svörin og bið hana afsökunar ef það á ekki að koma með spurningar í þessa umræðu. Ég geri það betur seinna.
Varðandi mannauðsmálin þá finnst mér gleðilegt að heyra að það sé verið að huga að þeim. Ég hins vegar heyrði hæstv. utanríkisráðherra ekki taka undir það að hún styðji það þegar komnar eru fram, hvað segir maður, ávirðingar um að eitthvert misrétti sé á ferð — af því að ég veit að hún er mikil réttlætismanneskja og hennar flokkur — að mikilvægt sé að leiðrétta allt það sem stendur út af, hvort hún geti ekki tekið undir það.
Varðandi vinnu öryggis- og varnarmálahópsins þá hefur þetta verið frábært samstarf og rosaleg keyrsla. Við erum búin að funda með ótal mörgum aðilum en ég fer ekki ofan af því, og heyrði það sem hæstv. utanríkisráðherra sagði, að ég tel tímann of knappan og myndi vilja heyra hæstv. utanríkisráðherra staðfesta eða segja það, veita mér þægilegri tilfinningu, að skilin 21. maí séu kannski bara áfangi á lengri vegferð. Ég held að það sé til mikils að vinna að við náum breiðri sátt og ég held að við viljum það öll. En það verður erfiðara eftir því sem tímaramminn er þrengri.