utanríkis- og alþjóðamál 2024.
Virðulegi forseti. Ég ætlaði nú ekki að hræða hv. þingmann frá því að spyrja spurninga. Það er alvanalegt en oft er það líka þannig að ráðherra tekur þær saman í lokin. Ég fékk að vita rétt áðan að ég hef bara fimm mínútur á eftir þannig að ég næ ekki að svara öllu því sem sett hefur verið fram í dag. En þetta er í gangi varðandi launagreiðslurnar sem tengist líka staðaruppbótunum o.fl. Það er í vinnslu. Þó að það séu ekki allir hér inni hrifnir af jafnlaunavottun þá er hún ákveðið mælitæki og öryggistæki sem við m.a. notum til að sjá hvað er í gangi. Það er bara hluti af því að vinna að einhverri skynsamlegri heildarmynd í kerfi sem á sínar sögulegu rætur. Síðan breytist umhverfið, bæði vinnuumhverfið og alþjóðlega umhverfið, og við þurfum bara að vinna og bregðast við í samræmi við það.
Varðandi það hvernig við munum halda áfram að styðja Úkraínu þá er alveg ljóst og bæði ég og forsætisráðherra höfum gefið út skýrar yfirlýsingar um það að við munum halda áfram að styðja Úkraínu, (Forseti hringir.) bæði í enduruppbyggingu og endurbótum sem þurfa að eiga sér stað, náttúrlega eftir að friður er kominn á. (Forseti hringir.) Við höfum lýst yfir stuðningi við aðild Úkraínu að NATO og ESB. (Forseti hringir.) Við munum líka, og höfum sagt það, reyna að nota okkar sérfræðiþekkingu. Við höfum talað um orkuuppbyggingu, uppbyggingu mannvirkja o.s.frv. Já, því mun Ísland gera sitt til að stuðla að endurbyggingu Úkraínu þegar þar að kemur.