156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:48]
Horfa

Eiríkur Björn Björgvinsson (V):

Virðulegur forseti. Það er mikilvægt að eiga hér samtal um utanríkismál og stöðu Íslands í alþjóðlegu samhengi og samstarfi. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. utanríkisráðherra fyrir framsögu sína og skýrsluna um utanríkis- og alþjóðamál fyrir árið 2024. Það er gríðarlega mikilvægt að heyra afstöðu ráðherra til þessa mikilvæga málaflokks og stöðunnar eins og hún er í dag en ekki síður hvernig hún var á síðasta ári. Sá er hér stendur hefur það hlutverk sem þingmaður að vera formaður Íslandsdeildar þingmannanefndar um norðurskautsmál og langar því að ræða hér málefni norðurslóða alveg sérstaklega. Ég vil vekja athygli á því að það er fjallað um þennan málaflokk á bls. 56 í skýrslunni, hafi menn áhuga á því að lesa.

Herra forseti. Norðurslóðir hafa svo sannarlega verið í umræðu að undanförnu, ekki síst eftir að núverandi Bandaríkjaforseti upplýsti nýlega um áhuga sinn á Grænlandi. Það er svo sem ekki nýtt að þessi heimshluti sé í umræðunni. Hann hefur sannarlega verið í umræðunni í mörg ár, m.a. vegna siglingaleiðarinnar yfir norðurpólinn. Íslensk stjórnvöld hafa almennt jákvæða og virka afstöðu til samstarfs á norðurslóðum. Ísland lítur á norðurslóðir sem mikilvægt svæði, bæði hvað varðar öryggi, umhverfismál, loftslagsmál og efnahagslega þróun.

Herra forseti. Eins og við þekkjum er Ísland aðili að Norðurskautsráðinu og sú aðild er okkur alveg gríðarlega mikilvæg. Samstarf á norðurslóðum fer að mestu leyti fram innan ramma Norðurskautsráðsins þar sem Ísland er eitt af nú sjö aðildarríkjum. Norðurskautsráðið er lykilvettvangur fyrir samstarf ríkja á norðurslóðum þó að starfið í augnablikinu sé ekki mjög virkt og í kringum ráðið hafa þróast ýmsar stofnanir og vinnuhópar sem sinna sérhæfðum verkefnum. Þessar stofnanir eru hluti af alþjóðlegu samstarfi sem Ísland tekur virkan þátt í. Mig langar í þessu samhengi að nefna helstu stofnanir og samráðsvettvanga Norðurskautsráðsins sem eru okkur mjög mikilvægir. Þetta geri ég til þess að leggja áherslu á mikilvægi þessa málaflokks í alþjóðlegu samstarfi.

Norðurskautsráðið starfar í gegnum sex fasta vinnuhópa sem sinna vísindum, umhverfisvernd og samfélagsþróun og Ísland á fulltrúa í öllum þessum hópum. Mig langar að byrja á að nefna Arctic Monitoring and Assesment Programme, en þetta er hópur sem fjallar um vöktun og mat á umhverfi og mengun á norðurslóðum sem eru gríðarlega mikilvæg mál. Mig langar að nefna CAFF eða Conservation of Arctic Flora and Fauna sem hefur það hlutverk að vakta og fjalla um vistkerfi, líffræðilega fjölbreytni og náttúruvernd. Svo er það Emergency Prevention, Preparedness and Response sem er vettvangur fyrir samvinnu um viðbúnað og viðbrögð við hamförum og slysum. Svo er það PAME, Protection of the Arctic Marine Environment sem hefur á sinni könnu verndun sjávarumhverfis á norðurslóðum.(Forseti hringir.)

(Forseti (KGH): Forseti gerir þá athugasemd að þingmálið er íslenska.)

Ég skal virða þessa ábendingu, takk fyrir. Síðan er það SDWG sem tekur fyrir sjálfbæra samfélagsþróun, mannréttindi og velferð íbúa á norðurslóðum. Þá er það ACAP sem vinnur með aðgerðir gegn mengun og efnafræðilegum áhættuþáttum. Þá er rétt að nefna hér sérstaklega rannsókna- og tengslanet sem tengjast Norðurskautsráðinu en þau eru m.a. samstarf háskóla á norðurslóðum og Háskóli Íslands og Háskólinn á Akureyri eru virkir þátttakendur í því samstarfi. Síðan er samstarf um ráðstefnur og verkefni sem miða að því að styrkja samfélög á norðurslóðum.

Herra forseti. Það er sérstaklega áhugavert fyrir okkur Íslendinga að tvær stofnanir sem starfa á vegum Norðurskautsráðsins eru formlega með aðsetur á Íslandi eða á Akureyri. Það eru sem sagt CAFF og PAME, sem eru skammstafanir, og þetta sýnir vel hversu virkur þátttakandi Ísland er og hvernig við höfum staðsett okkur sem miðpunkt í málefnum norðurslóða.

Stefna Íslands í málefnum norðurslóða byggir á meginmarkmiðum um frið, sjálfbærni, alþjóðlegt samstarf og öryggi. Hún er skilgreind í stefnuskjölum utanríkisráðuneytisins, m.a. í stefnu Íslands í málefnum norðurslóða sem uppfærð var síðast árið 2021. Stefnan felur í sér bæði hagsmunagæslu og ábyrgð Íslands sem strandríkis á norðurslóðum. Ísland leggur áherslu á að norðurslóðir haldist sem svæði friðar og stöðugleika. Stuðningur við alþjóðalög, einkum hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna, er lykilatriði í stefnu Íslands. Ísland tekur þátt í öryggis- og varnarsamstarfi á norðurslóðum, m.a. í gegnum aðild að NATO og norrænu varnarsamstarfi, en án eigin herafla leggur Ísland áherslu á borgaralegt öryggi, leit og björgun og hamfaravarnir eins og hefur komið fram hér í umræðunni í dag. Norðurslóðir eru viðkvæmar fyrir loftslagsbreytingum og stefna Íslands leggur ríka áherslu á verndun umhverfisins, þar með talið hafsins, líffræðilegrar fjölbreytni og vistkerfa. Ísland vill stuðla að sjálfbærri nýtingu auðlinda, svo sem fiskstofna og orkugjafa, og beitir sér fyrir vísindalegri nálgun og alþjóðlegum reglum á því sviði. Síðan er það ríkur stuðningur Íslands við norðurslóðarannsóknir og alþjóðlegt vísindasamstarf í gegnum Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri sem gegna þar gríðarlega mikilvægu hlutverki, auk þess sem Norðurslóðanetið, sem er staðsett á Akureyri, er mikilvæg stofnun á þessu sviði sem og ráðstefnan Arctic Circle, sem hefur verið haldin hér á landi í nokkur ár, Hringborð norðurslóða. Síðast en ekki síst er mikilvægt að nefna að Ísland styður réttindi frumbyggja og leggur áherslu á lýðræðislega þátttöku og að rödd íbúa á norðurslóðum heyrist í stefnumótun um málefni norðurslóða.

Herra forseti. Það er mikilvægt að leggja áherslu á að stefna okkar byggist á jafnvægi milli hagsmuna Íslands sem ríkis á norðurslóðum og ábyrgðar okkar í því að stuðla að sjálfbærri og friðsælli þróun svæðisins. Við Íslendingar höfum sýnt það í okkar störfum á alþjóðavettvangi að við eigum erindi í umræðuna um alþjóðamál og á okkur er hlustað. Það þekki ég m.a. af eigin raun. Okkar rödd hefur heilmikið vægi á alþjóðlegum vettvangi. Þá stöðu þurfum við að halda áfram að styrkja.