156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[21:56]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V):

Virðulegi forseti. Mér bárust þau gleðilegu tíðindi að ég fæ tíu mínútur en ekki fimm og horfi ég nú á hæstv. forseta hér. Þetta er búið að vera alveg ótrúlega góð umræða að mínu mati hér í þinginu, mjög mikilvæg. Mér finnst við hafa verið að gefa skýr skilaboð um það að við Íslendingar, svona langflest að mínu mati hér, erum ekki að draga okkur í skel þegar aðstæður eru eins og þær eru í dag í heiminum, heldur erum við frekar að styrkja frekara samstarf okkar við bandalagsríki okkar beggja vegna Atlantshafsins, bæði vestur um haf og austur yfir. Það skiptir máli að héðan koma samstöðutónar, að vinna með nágrannalöndum okkar sem deila sömu gildum og eru líkt þenkjandi o.s.frv., og stuðla einmitt að því að verja lýðræðið, verja mannréttindi og ekki síst frelsi sem er svo mikilvægt. Í þeim aðstæðum sem við sjáum núna í alþjóðakerfinu þá veltum við fyrir okkur hvernig við getum best tryggt stöðu okkar í samfélagi þjóðanna. Um þær ákvarðanir þarf virkt samtal og samstarf í stjórnmálunum og í samfélaginu og mér finnst þetta vera gott samtal á þessum degi í dag og skemmtilegt samtal. Við vitum alveg um deilurnar eða ágreininginn um Evrópusambandið o.s.frv., en langflest erum við samt, finnst mér, með augun á þeim bolta hvað við getum gert og hvernig til að styrkja varnir og öryggi landsins, hvernig við getum verið sterk rödd í alþjóðasamfélaginu, ýtt undir það að lönd og ríkjasambönd og bandalög virði alþjóðalög til að tryggja lýðræði, frelsi og frið, ekki bara í Evrópu heldur víðar.

Mig langar aðeins að fara yfir það sem hefur komið fram hér. Ég vil bara undirstrika þegar kemur að Gaza, Palestínu og Ísrael að við Íslendingar styðjum tveggja ríkja lausn. Við styðjum það og erum að vinna að því og við höfum tekið afgerandi skref og ætlum að taka virkari þátt á þeim vettvangi þannig að það sé alveg á hreinu. Við gerum ótvíræða kröfu um það, ekki síst núna í ljósi þróunar alla vega síðustu 70 daga, og bara á þessum tíma sem hefur liðið erum við að upplifa einar mestu hörmungar á þessu svæði sem mig alla vega rekur minni til og það þarf nauðsynlega að koma mannúðaraðstoð á Gaza-svæðið og það verður með einhverjum hætti að þrýsta þannig á Ísraela að þeir komi neyðarbirgðum og mannúðaraðstoð inn á svæðið. Það er hrikalegt ástand núna og maður heldur að það geti ekki versnað, en ég er samt hrædd um að það gerist. Alþjóðasamfélagið má ekki bara líta til hliðar þegar ástandið er með þessum hætti. Þess vegna finnst okkur m.a. í ríkisstjórninni mikilvægt að tala skýrt, skýrar en kannski áður hefur verið gert, en að sjálfsögðu í samráði við utanríkismálanefnd sem á eðlilega að vera upplýst um ýmis skref.

Ég vil aðeins fara inn á greinargerðina sem fór til Alþjóðadómstólsins. Hún var kynnt fyrir utanríkismálanefnd 28. febrúar. Það er ekki rétt sem kom hérna fram hjá hv. þm. Sigríði Andersen að það hafi ekki verið gert. Við gerðum það og upplýstum það þegar við skiluðum inn greinargerðinni á sínum tíma. Það er ekki fjallað um greinargerðina í skýrslunni því hún tekur, eins og við vitum, bara til síðasta árs. Ég vil undirstrika með UNRWA, við sáum það m.a. á viðtali við Grétu Gunnarsdóttur sem er yfir UNRWA í New York og sendiherra innan þjónustunnar, að það er ekki hægt að bera nein hjálparsamtök saman við UNRWA sem veitir þessa grunnþjónustu sem ég minntist á, sem er sambærileg þeirri þjónustu sem ríki á að veita. Það var um þetta algjört samkomulag á sínum tíma. Ég bara undirstrika það að við þurfum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja þessa mannúðaraðstoð sem er verið að kalla eftir og það munum við halda áfram að gera. Við erum búin að taka ákveðin skref og ætlum að halda áfram að gera það.

Varðandi þróunaraðstoðina er auðvitað mikilvægt að hafa gott eftirlit með þróunarsamvinnu. Það er gríðarlega mikilvægt, það þarf að passa vel upp á það. Við erum í þessari mikilvægu þróunarsamvinnu og ég heyrði m.a. frá Miðflokknum að þar var ákveðin gagnrýni á að við værum úti um allt. Það er einfaldlega ekki rétt. Við erum kannski frekar á fáum stöðum. Við erum í þremur löndum í Afríku og höfum oftar en ekki verið í mjög góðum samskiptum við þau ríki og m.a. eru þetta tengsl sem skipta okkur máli þegar við erum að starfa á vegum alþjóðastofnana. Það skiptir líka mjög miklu máli að ná að snerta fleiri heldur en bara nágrannaþjóðirnar, ná að vinna að okkar málum, afla þeim brautargengis með samtali við aðrar þjóðir, þar með talið Afríkuríki. Sendiráðin þar spila mjög mikilvægt hlutverk og það er nauðsynlegt að starfsfólkið okkar þar geti sinnt málum af festu. Tvíhliða þróunarsamvinna hefur alltaf verið lykilþáttur í þróunarsamvinnu Íslands og er sá hluti hennar þar sem auðvelt er að draga fram með beinum hætti í hvað fjármunir fara og hvaða árangri er verið að ná með íslensku skattfé. Ég vil líka undirstrika það að með virkri þátttöku í alþjóðlegri þróunarsamvinnu leitast Ísland við að uppfylla pólitískar, lagalegar en ekki síður siðferðislegar skyldur sem ábyrg þjóð í samfélagi þjóðanna. Hér áðan var það nefnt að við vorum, að mig minnir, skilgreind til ársins 1973 sem þróunarland. Okkar uppgangur og velsæld í dag byggist á því að aðrar þjóðir höfðu skilning á því að styðja við Ísland á erfiðum tímum og síðan koma til viðbótar skynsamlegar ákvarðanir okkar um að taka fullan þátt, hvort sem það er á sviði NATO og síðan í gegnum EFTA og svo með EES-samningnum, sem eykur síðan velsæld og farsæld hér á Íslandi. Við vorum einu sinni þar, fyrir um 100 árum vorum við á mjög erfiðum stað hvað þetta varðar og þurftum að treysta á aðrar þjóðir þannig að við eigum ekki að láta okkar eftir liggja þegar kemur að því að hjálpa og taka utan um aðrar þjóðir.

Ég vil undirstrika varðandi Bandaríkin að það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að halda góðum tengslum við Bandaríkin, okkar mikilvægu vinaþjóð. Við erum með gríðarlega öflugt sendiráð í Bandaríkjunum en við gerum okkur líka grein fyrir því að núna þegar hlutirnir eru að þróast með þessum hætti þá erum við að skoða það að bæta við einmitt starfsfólki þar, hugsanlega staðaráðnu, til að efla enn frekar tengingar við hina ýmsa þætti innan bandarísks stjórnkerfis. Það var verið að tala um greiðslur til Bandaríkjanna. Þetta eru ekki greiðslur til Bandaríkjanna heldur er þetta einfaldlega fjárfestingarsjóður sem fer til uppbyggingar í Úkraínu hvað varðar samninginn milli Bandaríkjanna og Úkraínu. Það var líka verið að tala um það af hálfu Miðflokksins að það væri hér bara einhver opinn tékki af framlögum til varnarmála sem tengjast Úkraínu. Við erum að uppfylla okkar skuldbindingar sem voru samþykktar á síðasta ári í tengslum við leiðtogafundinn. Við erum að gera það sem var lofað og ég tel mjög mikilvægt að það sé dregið fram. 4 milljarðarnir sem stundum hafa verið nefndir koma til vegna þingsályktunar sem þingið samþykkti samhljóða. Það væri frekar hægt að gagnrýna okkur í ríkisstjórninni ef við hefðum ekki fylgt þessu eftir. Síðan voru það 3,6 milljarðar í viðbót frá júlífundi NATO. Auðvitað er það þannig að við settum fyrirvara vegna þess að það var ekki fullfjármagnað, en við þurfum að geta sýnt að við bregðumst hratt við og við setjum þá hluti í fjárauka ef það þarf til, til þess að standa með Úkraínu og undirstrika að við erum þessir verðugu bandamenn sem við viljum vera.

Ég vil bara rétt í lokin taka undir það sem hefur verið sagt hér, það er verið að kalla eftir auknu samtali. Ég tek undir það. Ég tek undir það að flytja m.a. munnlega skýrslu hér í þinginu og ég tek undir það að ég vil frekar sjá meira heldur en minna af því ágæta fólki sem er í utanríkismálanefnd. Það er mikið í húfi þegar við erum að tala um utanríkismálin. Við höfum komið inn á varnarmálin og svo er það þannig að við erum auðvitað líka með þetta litla og að einhverju leyti brothætta opna hagkerfi og þá þurfum við ekki síst á öflugri utanríkisþjónustu að halda. Ég er afar stolt af öllu því fólki sem ég er að vinna með innan þjónustunnar. En mér finnst líka gott að vita það að það er öflugt fólk hér á þingi sem hefur metnað og mér finnst líka þá skýru ákvörðun í þá veru að við ætlum að gera enn betur þegar kemur að utanríkismálum í heild sinni, hvort sem við erum að tala um varnarmál, þróunaraðstoð eða málefni sem tengjast viðskiptum, þannig að ég hlakka til enn frekara samstarfs.