156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[22:06]
Horfa

Guðmundur Ari Sigurjónsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég kem hér upp í andsvari undir lok umræðunnar með þessa góðu skýrslu í höndunum í rauninni af því að ég vil einfaldlega hrósa hæstv. utanríkisráðherra fyrir þessa vinnu sem hún hefur lagt fram í dag og hennar þátttöku í umræðunni en líka fyrir hennar fyrstu skref sem hæstv. utanríkisráðherra. Ég tel að á afar krefjandi tímum í utanríkismálunum hafi hæstv. utanríkisráðherra náð að sameina þjóðina um þau grunngildi sem við viljum standa fyrir sem íslensk þjóð; vera málsvari friðar, mannréttinda og að við stöndum með bandalagsríkjum okkar í einu og öllu. Ég vil þakka hæstv. utanríkisráðherra sérstaklega fyrir þetta og ég vil bara hvetja hana áfram til dáða í þeirri góðu vinnu sem er fram undan og hvort sem við erum að tala um stríð í Evrópu eða hryllinginn sem á sér stað á Gaza þá þykir mér hæstv. utanríkisráðherra hafa staðið sig vel í þessari umræðu og hvet hana áfram til dáða.