156. löggjafarþing — 40. fundur,  12. maí 2025.

utanríkis- og alþjóðamál 2024.

371. mál
[22:07]
Horfa

utanríkisráðherra (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hlý orð í minn garð en um leið geta þess að mér finnst mikilvægt að finna þennan góðan takt hér í þinginu sem er svona ákveðinn samstöðutaktur þegar kemur að þessum málaflokki, þó að ég hafi greint vissulega einhvern áherslumun, það á eftir að koma í ljós síðar. En ég fer bjartsýn inn í þessa vinnu sem er m.a. tengd varnar- og öryggismálum. Það er alveg ljóst að til að tryggja friðinn þá þarf að verja friðinn, til að tryggja frelsið þá þarf að verja frelsið. Í því felst okkar ábyrgð. Þess vegna tökum við þetta hlutverk alvarlega. Þess vegna er mikilvægt að þessi mál voru rædd mjög mikið, hvort sem það voru varnar- og öryggismál, þróunarsamvinnan, utanríkismál í heild sinni, við stjórnarmyndunarviðræðurnar. Það er gott að vera með samhenta ríkisstjórn en ekki síður hitt að hafa þessa tóna þvert á alla flokka að vilja gera betur og gera sér grein fyrir því að við lifum í svolítið öðrum veruleika í dag heldur en bara fyrir þremur mánuðum, hvað þá sex mánuðum síðan. Við megum ekki gleyma því að með því að verja friðinn, eins og ég segi, og verja og tryggja frelsið, þá þýðir það að við beitum röddinni, að við beitum okkur þar sem við getum beitt okkur og við finnum að við höfum áhrif. Erum við alltaf að gera það besta og skynsamlegasta? Við erum alla vega að reyna að gera það sem við getum. Þess vegna þurfum við að tala fyrir því að alþjóðalög séu virt, tala fyrir því að friðhelgi landamæra séu virt, tala fyrir fullveldi þjóða, hvort sem það er í Evrópu eða annars staðar, og Ísland er með svo dýrmæta rödd á þessum vettvangi. Þess vegna er enn þá mikilvægara fyrir utanríkisráðherra hverju sinni að finna samstöðu úr þinginu. Það er dýrmæta veganestið sem ég tek héðan í dag.