störf í nefndum þingsins.
Frú forseti. Það þarf vonandi ekki að minna hv. þingheim heim á að það er nú akkúrat hér í þessu ágæta húsi þar sem lögin í landinu eru smíðuð, gegnrædd og sniðnir af agnúar svo best megi vera fyrir fólkið í landinu. Ég kem hérna upp, frú forseti, því að það hefur borið á því að undanfarnar vikur eða í lengri tíma að störf í nefndum eru með þeim hætti að borist hafa kvartanir um að almennileg umræða eigi sér ekki stað í nefndunum; gestir fái lítinn tíma, hafi ekki allan þann tíma sem þeir þurfa til að koma sínum sjónarmiðum á framfæri o.s.frv. Ég vil því koma hingað upp og óska eftir því að hæstv. forseti hlutist til um að nefndarvinnan geti gengið eins vel fyrir sig og hægt er í þeirri merkilegu vinnu sem þar á sér stað svo sómi sé að.