störf í nefndum þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vil nota tækifærið og taka undir þetta. Eitt nýlegt dæmi er t.d. frá fundi velferðarnefndar í gær þar sem fjallað hafði verið um gríðarlega stórt mál, lögfestingu á samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Ákveðnir hópar og mikill fjöldi gesta hafði komið til nefndarinnar en ekki var hægt að verða við því að fá fulltrúa frá fjármálaráðuneytinu eða fá yfirleitt umsögn þaðan og gert lítið úr því að þessi lögfesting geti mögulega haft áhrif á sveitarfélögin í þessu tilviki og þá sem veita þjónustuna. Það er náttúrlega alveg með eindæmum og er alveg ömurlegt að horfa upp á það og ekki bjóðandi fötluðum að við séum enn að deila um fjármagn til þeirra, ríki og sveitarfélög og aðrir. (Forseti hringir.) Það er óboðlegt og það hefði verið meiri bragur á því að verða við þessum óskum minni hlutans. (Forseti hringir.) Það varð ekki og því skildum við eftir bókun í nefndinni.