störf í nefndum þingsins.
Virðulegur forseti. Ég var nýr þingmaður á síðasta kjörtímabili og var þá í minni hluta undir forystu þeirra sem sátu í meiri hluta, fékk m.a. að sitja í fjárlaganefnd, í velferðarnefnd, í efnahags- og viðskiptanefnd. Ég lærði ýmislegt meðan ég var í minni hluta, m.a. af þeim sem voru að stýra nefndunum á því kjörtímabili. Mér fannst það bara ganga ágætlega og ég reyndi að tileinka mér þau vinnubrögð sem þar voru viðhöfð. Ég var svo þess heiðurs aðnjótandi á þessu kjörtímabili að fá að leiða nefnd og ég hef ekki orðið var við mikil læti í þeirri nefnd. Mér finnst reyndar og hef upplifað það þannig að við séum bara að gera mjög svipaða hluti og gerðir voru á síðasta kjörtímabili og skil ekki þessar kvartanir þeirra sem hér hafa komið.