156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

störf í nefndum þingsins.

[13:41]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Herra forseti. Það sem minni hluti velferðarnefndar bókaði í gær var að minni hluti velferðarnefndar legðist gegn því að taka mál nr. 187 úr nefnd að svo stöddu. Minni hluti nefndarinnar hefur óskað eftir frekari upplýsingum, m.a. fjárhagslegu mati, og óskað eftir að fá á fund nefndarinnar fulltrúa frá fjármálaráðuneyti og dómsmálaráðuneyti, sem er nýtekið við málaflokknum sem þetta ágæta mál fellur undir. Það er mikilvægt að fá útreikning frá ráðuneytunum fyrir þinglega meðferð málsins í anda vandaðra vinnubragða. Þetta er ekki flóknara en þetta. Það er ekkert voðalega smart þegar formaður hv. velferðarnefndar kemur með svona komment eins og hérna, hv. þingmaður nýbyrjaður í störfum í þinginu. Við reynum bara að vera með öguð vinnubrögð og taka tillit til hlutanna og fara í gegnum þá og sem gamall fjárlaganefndarmaður vil ég segja að það er (Forseti hringir.) gríðarlega mikilvægt að í frumvörpum sé gert alvöruáhrifamat, mat á áhrifum frumvarpanna fjárhagslega fyrir samfélagið. Í þessari umræðu er rétt að benda á ýmis mál sem hafa komið upp og hafa orðið að gríðarlegum vandamálum (Forseti hringir.) fjárhagslega fyrir ríkið. Það eina sem við höfum óskað eftir eru bara betri vinnubrögð í því sem snýr að þessu (Forseti hringir.) og ég vona að þingið læri eitthvað af þessu og formenn nefnda.

(Forseti (ÞSv): Forseti bendir hv. þingmönnum á að ræðutíminn er ein mínúta.)