156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

störf í nefndum þingsins.

[13:43]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Frú forseti. Í innkomu hv. þingmanns og formanns velferðarnefndar hér áðan endurspeglast kannski það sem við í stjórnarandstöðunni erum að benda á í þessu tiltekna máli sem snýr að lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þó að nefndarálitinu hafi ekki verið dreift þá held ég að ég treysti mér til að hafa það eftir sem þar kemur fram og ég hef séð, sem er efnislega að málið undirbyggi ekki réttindi og að fatlað fólk geti ekki sótt réttindi á grundvelli málsins. Síðan segir sömuleiðis að dómstólar verði að kveða upp úr um það með hvaða hætti það þróast. Hérna er verið að ákveða að færa dómstólum í fangið hið eiginlega löggjafarvald í stað þess að við glöggvum okkur á þessu hér inni (Forseti hringir.) og leggjum mat á kostnaðinn. Sveitarfélögin eru nefnilega búin að leggja mat á kostnaðinn. Því er algerlega óforsvaranlegt að hv. nefnd taki það ekki til skoðunar og taki afstöðu til þess mats (Forseti hringir.) sem er upp á, ef ég man rétt, rétt um 14 milljarða á ári sem er engin smátala.