störf í nefndum þingsins.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það að mér finnst ansi lítið gert úr þessu stóra máli með þessum orðum sem hér voru látin falla áðan af hv. formanni velferðarnefndar og öðrum fulltrúum í nefndinni. Við þekkjum umsagnir sveitarfélaganna. Við þekkjum skýrslu sem einn helsti sérfræðingur í fjárhagslegum þáttum málaflokksins, Haraldur Líndal Haraldsson, hefur gert, mjög ítarlega skýrslu þar sem þetta kemur allt fram, þar sem áhrifin eru metin. Enn og aftur erum við að gera lítið úr umsögnum og varúðarorðum sveitarfélaganna og því bara vísað á bug að fá umsagnir þótt það væru ekki nema nokkur orð á blað. Og eins og kom fram í máli hv. þm. Bergþórs Ólasonar; þó að einhverjir telji að lögin hafi nú þegar komið á ýmsum réttarbótum þá er verið að ýta undir það að fólk leiti réttar síns til dómstóla því að væntingar fatlaðra eru mjög miklar í garð þess að þjónustan muni aukast til muna.