156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

störf í nefndum þingsins.

[13:47]
Horfa

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir (Flf):

Frú forseti. Mig langaði til að trúa því að stjórnarandstaðan meinti það sem mér heyrðist alla vega einhver þeirra segja hérna í upphafi, að vilja styðja góð mál, og ég hélt kannski að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks væri eitt af þessum málum sem við vitum öll að beðið er eftir. Það er búið að bíða eftir því í mörg herrans ár að það verði að veruleika, að það væri akkúrat mál sem við öll getum sameinast um. Og varðandi það að ekki sé hlustað á hvað stjórnarandstaðan vill og biður um þá vil ég minna á beiðnina um að fá heilbrigðisráðherra til svara varðandi Janus og ég veit ekki betur en að heilbrigðisráðherra sé að koma á fund nefndarinnar á morgun. Þannig að þetta er ekki alveg svona grimmdarlegt sem gengur þarna á í velferðarnefndinni, alla vega hafna ég því.

En ég vil bara rétt ná að lesa hérna það sem við erum búin að fá frá bæði ráðuneytum og fleirum og erum búin að ræða lengi; það er útilokað að reikna út fjárhagsleg áhrif, möguleg eða ómöguleg, til næstu tíu ára varðandi þennan samning. Þetta er líka bara einhvern veginn allt (Forseti hringir.) öðruvísi mál en þau mál sem hægt er að setja verðmiða á og allt er klippt og skorið og það veit auðvitað stjórnarandstaðan mjög vel. Þess vegna finnst mér leiðinlegt að þau (Forseti hringir.) skuli draga þetta mál fram til að gera úr því (Forseti hringir.) eitthvert leiðindamál. Það eru léleg og vond skilaboð til þess fólks sem bíður eftir að fá þetta plagg lögfest.

(Forseti (ÞSv): Aftur skulu hv. þingmenn minntir á ræðutímann.)