störf í nefndum þingsins.
Forseti vill af þessu tilefni taka fram að ég hef átt, eins og fram kom fyrr í umræðunni, fundi með formönnum fastanefnda einum þrem sinnum síðan þing kom saman fyrir rúmlega þremur mánuðum síðan og síðasti fundur var í síðustu viku. Ég held að ég geti fullyrt að allir hv. þingmenn, hvort sem þeir styðja ríkisstjórnina eða ekki, hafi metnað og dug fyrir góðum vinnubrögðum, bæði í fastanefndum og hér í þingsalnum. Ég mun gera mitt til að styðja formenn fastanefnda til þess og leggja áherslu á að vinnubrögðin séu góð.
Mig langar kannski að minna á að það settust 33 nýir þingmenn í þennan sal eftir kosningarnar í lok síðasta árs. Forseti er þeirrar skoðunar að fólk hafi almennt tileinkað sér þingstörfin vel og hratt en eins og þau sem eldri eru og hafa verið hér eilítið lengur vita þá er það ekki áhlaupaverk að setjast á þing. Það er líka þannig að hér er fólk að tileinka sér ný hlutverk, bæði í stjórnarmeirihluta og í stjórnarandstöðu, en forseti tekur fullt mark á því sem hér kemur fram.