störf í nefndum þingsins.
Virðulegur forseti. Það er auðvitað með ólíkindum að hlusta á formann nefndarinnar segja okkur þingheimi að það sé ekki hægt að reikna út kostnað af því frumvarpi sem hér hefur verið minnst á. Hvers konar vinnubrögð eru það? Auðvitað í trássi við allar þær reglur sem gilda um frumvörp. Það er meira að segja lögfest að það skuli reikna út kostnað sem lendir á sveitarfélögum við að gera frumvörp að lögum. Það er auðvitað algerlega óásættanlegt að þingið eigi að samþykkja einhvern opinn tékka inn í framtíðina. Það geta ekki talist vönduð vinnubrögð.
Við höfum vítin að varast í þessum efnum, virðulegur forseti. Þegar við innleiddum NPA-þjónustuna á sínum tíma, notendastýrða persónulega aðstoð við fatlaða, þá minnir mig að áætlunin sem var gerð með sveitarfélögum og öðrum hafi verið upp á sirka 1,5 milljarða. Ég held að kostnaðurinn við þetta hafi tífaldast, (Forseti hringir.) virðulegur forseti, og reikningurinn lendir á ríkissjóði. Við verðum auðvitað að gera okkur grein fyrir umfangi mála þegar um svona stór og alvarleg mál (Forseti hringir.) er að ræða og hlusta á athugasemdir sveitarfélaganna þegar að því kemur.