störf í nefndum þingsins.
Virðulegi forseti. Já, mér finnst við svolítið vera komin í VAR-skjáinn. Það sem gerðist var að málið var tekið út í ágreiningi í nefnd og það hefur gerst áður, oft og ítrekað, og það mun gerast aftur. Þannig er bara eðli þingstarfanna, ekkert athugavert við það. Ég sat hérna á þingi fyrir átta árum, ég hef komið hérna inn sem varaþingmaður og nú sit ég hér og ég hef ekki orðið var við neinar grundvallarbreytingar á því hvernig nefndastarfi hefur verið háttað á þessum tíma í neina átt.
Það er rétt að það er mikilvægt að vanda vinnubrögð en hluti af vönduðum vinnubrögðum er líka það að nefndarformenn þurfa stundum að halda plani og halda áætlun. Það er líka mikilvægt. Ég heyrði hér sagt áðan að það skipti ekki máli hve mörg mál væru tekin út, það má til sanns vegar færa að síðasti meiri hluti vann svolítið í anda þeirrar hugmyndafræði. Mér finnst við vera svolítið fljót að detta í þau spor sem þingræðið ætlar okkur, hér eru auðvitað gerðar athugasemdir við gestakomur og það er oft gert þegar minni hlutinn vill gera athugasemd við eitthvað. En ég sé bara ekkert að því sem formaður hv. velferðarnefndar hefur gert í þessu máli og ég hvet hana bara áfram til góðra verka.