156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

störf í nefndum þingsins.

[13:58]
Horfa

Ingibjörg Isaksen (F):

Virðulegi forseti. Þetta snýst ekki um minni eða meiri hluta. Þetta snýst um vinnubrögð í nefndum. Við erum einfaldlega að benda á að það má gera betur. Við höfum verið að koma með ábendingar, m.a. inn á nefndarfundi, um það hvað megi betur fara. Það eru mjög mörg mál sem við viljum jafnvel samþykkja og styðja við en við verðum líka að finna okkar sannfæringu. Ef það er þannig að við teljum að það sé skortur á gögnum og upplýsingum til að við getum með góðri samvisku og sannfæringu stutt mál út úr nefnd þá er mikilvægt að kalla eftir þeim. Það er hins vegar líka þannig að það var sá bragur á að það var farið yfir nefndarálit meiri hlutans á fundum nefndanna á síðasta kjörtímabili, ekki lið fyrir lið heldur helstu atriði, og svo var það rætt. Það var tekin málefnaleg umræða um mál og svo var tekin atkvæðagreiðsla og þá bara fylgir hver og einn sinni sannfæringu. Þetta snýst um (Forseti hringir.) að við sýnum fólkinu virðingu sem kemur á fundi til okkar. Það hefur kvartað undan tímaskorti, það hefur kvartað undan því að það séu of margir og of ólíkir aðilar inni á nefndarfundum. (Forseti hringir.) Varðandi hæstv. heilbrigðisráðherra og ósk mína um að fá hann inn á fund velferðarnefndar þá hefur það tekið a.m.k. sex ef ekki átta vikur að fá það fram (Forseti hringir.) og sex beiðnir formlegar. Mér finnst það bara til skammar hversu seint er brugðist við þar.