156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

störf í nefndum þingsins.

[14:04]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Frú forseti. Halda áfram að ræða hérna aðeins af því að það var minnst á Janus endurhæfingu af formanni velferðarnefndar, hv. þm. Kolbrúnu Áslaugu Baldursdóttur. Það voru tveir mánuðir í gær síðan ég óskaði eftir í velferðarnefnd að taka upp málefni Janusar endurhæfingar í velferðarnefnd. Þá óskaði ég eftir því í hv. nefnd að heilbrigðisráðuneytið, félagsmálaráðuneytið, Janus endurhæfing, stjórn Geðlæknafélags Íslands, Einhverfusamtökin, fulltrúar þjónustuþega og fulltrúar aðstandenda þjónustuþega fengju að koma fyrir nefndina til að ræða málin þannig að við gætum áttað okkur á þeirri stöðu sem er þar uppi þar sem á að loka Janusi endurhæfingu núna 1. júní. Þetta erindi hefur verið margítrekað. Nú kemur formaður velferðarnefndar og segir: Jæja, við fáum ráðherrann á morgun. En þetta er búið að taka gríðarlegan tíma og það var beðið um miklu fleiri aðila til að koma á fund nefndarinnar (Forseti hringir.) til að átta okkur á stöðu mála. Þetta er mikil skemmri skírn ef þetta er það sem kemur út úr þessu, að fá ráðherrann og ekkert annað fyrir nefndina.