störf í nefndum þingsins.
Frú forseti. Ég sit í fjárlaganefnd og langaði að koma hér bara til þess að það væru ekki eingöngu neikvæðar umræður. Þar er hv. þm. Ragnar Þór Ingólfsson formaður nefndar og ég tel að nefndastörf þar hafi gengið með ágætum og fundarstjórn verið góð. Við höfum fengið tækifæri til að tjá okkur og taka á móti gestum og fengið alveg, held ég, í flestum tilfellum alla vega, ásættanlegan tíma með gestum. Auðvitað er ekki hjá því komist að í einstaka tilfellum langi mann að spyrja fleiri spurninga en tími gefst til. En ég sé ástæðu til að nefna þetta sérstaklega til þess að það liggi skýrt fyrir að hér er ekkert verið að ræða fundarstjórn í öllum nefndum.