störf í nefndum þingsins.
Virðulegur forseti. Ég stýrði hv. allsherjar- og menntamálanefnd á síðasta þingi og ég veit vel hvernig það er að stýra stórri nefnd sem fær mikið af málum til umfjöllunar. Það getur bara verið býsna erfitt, sérstaklega þegar uppi er ágreiningur um ýmis mál eins og var m.a. mjög gjarnan í hv. allsherjar- og menntamálanefnd. Ég verð reyndar að segja, virðulegur forseti, að ég minnist þess ekki að það hafi verið mörg mál tekin út úr nefndinni þá í ágreiningi en mér gæti förlast þannig að nú fer ég að fara yfir tölfræðina hvað það varðar. En ég minnist þess ekki. Hér áðan er látið að því liggja að það sé málefnalegur ágreiningur um lögfestingu samnings Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks. Svo er ekki. Sú sem hér stendur hefur ítrekað stutt ríkisstjórn sem var með þetta á dagskrá en okkur er einmitt ljóst hversu mikilvægt er að gera það mál vel og vandlega og horfa til allra þátta. Einn af stærstu þáttunum er auðvitað áhrifin á sveitarfélögin sem eru að veita þessa þjónustu og hafa lagt sig fram, (Forseti hringir.) bæði í umsögnum og á fundum með okkur þingmönnum. Hv. þingmenn hér á höfuðborgarsvæðinu þekkja það vel að við áttum góðan fund hér fyrr á árinu með fulltrúum í sveitarstjórnum um landið þar sem var farið sérstaklega yfir áhyggjur sveitarfélaga (Forseti hringir.) af þessu máli. Þannig að mig undrar mjög ef meiri hlutinn ætlar ekkert að taka tillit til þeirra umsagna og þess sem þar kemur fram.