Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Í störfum þingsins í síðustu viku varð hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni að umtalsefni sameiginleg yfirlýsing hæstv. utanríkisráðherra ásamt utanríkisráðherrum fimm annarra ríkja þar sem ísraelsk stjórnvöld voru hvött til að hverfa frá áformum um útvíkkun hernaðaraðgerða auk ákalls um vopnahlé á Gaza og mannúðaraðstoð á svæðið. Af máli hv. þingmanns að dæma felst í þessari yfirlýsingu, með leyfi forseta, að alið sé á „andúð í garð Ísraels“.
Öllum sem lesa yfirlýsinguna má vera ljóst að þetta er ekki rétt. Gagnrýni á hrikalegt framferði ísraelskra stjórnvalda er ekki andúð í garð Ísraels og nýjasta yfirlýsing forsætisráðherra Ísraels segir okkur nú heldur betur að það þurfi að tala skýrt þar sem byrjað er að tala um þvingaðan brottflutnings fólks frá Gaza. Það er líka sérstaklega ljúft að fræða þingmenn Miðflokksins um að utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar er ekki einasta þátttakandi í nefndri yfirlýsingu, hún kemur beinlínis til vegna þess að utanríkisráðherra hafði samskipti við utanríkisráðherra Noregs um málið.
Lokaorð þingmannsins í ræðunni voru áhugaverð, með leyfi forseta:
„Gerir hæstv. utanríkisráðherra sér ekki grein fyrir því að hún er utanríkisráðherra lítillar smáþjóðar norður í Atlantshafi sem vinnur við það að selja fisk? Okkar hlutskipti í veröldinni er að tala fyrir friði og selja fisk.“
Það er engin nýlunda að þingmaður Miðflokksins og flokkssystkini hans telji að Ísland eigi ekki að vera mjög virkur þátttakandi í alþjóðastarfi. Hér slær þó við alveg nýjan tón. Það er leitun að stjórnmálafólki sem talar með jafn smættuðum hætti til þjóðar sinnar og þingmaður Miðflokksins gerði þar sem hann sýnilega telur að stærð Íslands skuli mæld út frá fjölda fólks sem þar býr, ekki framgöngu heldur fjölda. Ef farið væri að orðum hv. þingmanns og Íslendingar gerðu ekkert annað en að selja fisk og tala fyrir friði hefðu Íslendingar ekki gerst stofnaðilar að NATO og ekki viðurkennt sjálfstæði Litáens fyrst allra ríkja. (Forseti hringir.) Raunar er ekkert líklegt að Ísland hefði slitið konungssambandi við Danmörku og lýst yfir sjálfstæði 1944, enda þarf ekki sjálfstæði til að tala fyrir friði og selja fisk. (Forseti hringir.) Svo lengi sem Viðreisn talar um Ísland verður hlutskipti Íslands í veröldinni eitthvað annað og stærra en að tala bara fyrir friði og selja fisk, (Forseti hringir.) fyrir nú utan það augljósa að þarna talaði hæstv. utanríkisráðherra fyrir friði hátt og skýrt.