156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:14]
Horfa

Ása Berglind Hjálmarsdóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Ég er á sömu nótum og hv. þm. Sigmar Guðmundsson enda tilefni til. Ísland er á meðal þeirra ríkja sem gera grein fyrir afstöðu sinni fyrir Alþjóðadómstólnum í skriflegri álitsgerð um að Ísrael sé brotlegt við skyldur sínar samkvæmt alþjóðalögum. Málinu sem nú er til umfjöllunar hjá Alþjóðadómstólnum var vísað þangað með samþykkt allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna 19. desember síðastliðinn. Alls sendu 45 ríki og alþjóðastofnanir inn skriflega greinargerð og er þetta í fyrsta sinn sem Ísland stendur eitt að greinargerð til Alþjóðadómstólsins.

Ég hjó eftir því í störfum þingsins 7. maí síðastliðinn, í kjölfar sameiginlegrar yfirlýsingar hæstv. utanríkisráðherra ásamt ráðherrum fimm annarra landa, að hv. þm. Karl Gauti Hjaltason gagnrýndi ráðherrann fyrir að vera að ala á andúð í garð Ísraels. Í síðasta mánuði birtu heilbrigðisyfirvöld á Gaza uppfærðan lista yfir íbúa Palestínu sem Ísrael hefur drepið með linnulausum árásum síðan í október 2023. Fyrstu 27 blaðsíðurnar voru með nöfnum barna sem voru drepin áður en þau urðu ársgömul, 27 blaðsíður. 447 blaðsíður innihalda nöfn þeirra tæplega 20.000 saklausu barna sem Ísrael hefur drepið á rúmlega einu og hálfu ári. Hversu margar blaðsíður þarf að fylla með nöfnum látinna barna áður en hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni finnst rétt að Ísland beiti sér fyrir því að Ísrael hætti að murka lífið úr saklausu fólki? Hversu mörg börn þurfa að drepast úr hungri, virðulegi forseti, vegna þess að Ísrael hleypir ekki inn þeim 2.000 vörubílum sem hafa beðið í 70 daga fullir af mat og öðrum lífsnauðsynjavörum inn á svæðið áður en hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni og Miðflokknum hans þykir við hæfi að Ísland beiti sér fyrir lífi þessa fólks? Hvar er mannúðin?

Virðulegi forseti. (Forseti hringir.) Ég ætla að gera orð Alberts Einsteins að mínum, með leyfi forseta: Heimurinn mun ekki farast vegna þeirra sem fremja illverk heldur vegna þeirra sem horfa á (Forseti hringir.) án þess að grípa inn í.