156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:17]
Horfa

Grímur Grímsson (V):

Virðulegi forseti. Í síðastliðinni viku var minnst tveggja tímamóta í sögu Evrópu. 80 ár eru liðin frá því að Þýskaland lýsti yfir ósigri í seinni heimsstyrjöldinni og Evrópudagurinn var haldinn hátíðlegur. Evrópudagurinn 9. maí er haldinn til að minnast Schuman-yfirlýsingarinnar frá 1950 sem markar upphaf náinnar samvinnu Evrópuríkja á sviði efnahags- og öryggismála. Íslendingar hafa í gegnum EES-samstarfið skuldbundið sig til að samræma íslensk lög við reglur ESB í því skyni að tryggja að sömu reglur gildi á öllum innri markaði Evrópu. Á sama tíma og þetta er nauðsynlegur þáttur í þátttöku okkar á Evrópska efnahagssvæðinu hefur það þó þá ókosti að Ísland er þiggjandi að regluverki án þess að koma að því að semja það og halda hagsmunum landsins til haga. Með aðild að ESB kæmum við að reglusetningu sambandsins. Andstæðingar ESB-aðildar hafa gert lítið úr þessu álitaefni með því að segja að sökum fámennis muni Ísland lítil sem engin áhrif hafa á sameiginlegu evrópsku þingi eða öðrum stofnunum ESB. Það er kunnara en frá þurfi að segja að Ísland er yfirleitt eitt fámennasta eða jafnvel fámennasta ríkið í því alþjóðastarfi sem við eigum aðild að. Því var haldið fram þegar Ísland gerðist stofnaðili að NATO að þar myndum við hverfa í skugga stórveldanna. Raunin hefur orðið allt önnur. Ísland hefur í raun stækkað í hverju alþjóðastarfi sem það er aðili að. Þegar Ísland viðurkenndi sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna var það grundvallaratriði að þarna væri NATO-ríki að styðja sjálfstæðisbaráttu ríkja sem voru að losna undan oki Sovétríkjanna. Það að Íslendingar séu fámenn þjóð hefur aldrei verið tilefni til að draga landið úr alþjóðastarfi. Hvers vegna ætti það þá að koma sérstaklega til álita þegar kemur því að taka ákvörðun um að taka þátt í alþjóðlegu starfi?

Forseti. Samstarf með öðrum ríkjum er ávallt mikilvæg spurning, kannski einmitt ein mikilvægasta spurningin sem við fáumst við á hverjum tíma. Hún var mikilvæg þegar við gengum í NATO, gerðumst aðilar að EFTA og undirrituðum EES-samninginn, jafnvel í því umhverfi að töluverður ágreiningur var um þessa samninga á meðal þjóðarinnar. Ísland hefur aldrei goldið þess að vera fámennt ríki í alþjóðasamstarfi. Þvert á móti, með samstarfi með öðrum ríkjum hefur rödd Ísland heyrst hátt og skýrt í samfélagi þjóða, miklu hærra en ef við hefðum staðið ein. Það skiptir nefnilega máli að eiga sæti við borðið, sérstaklega fyrir fámenna eyþjóð í norðri.