Störf þingsins.
Frú forseti. Það er oft vitnað í reynsluleysi hér á fyrstu metrum þessa þings. Nú gerist það að tveir þingmenn stjórnarflokkanna, annar er þingflokksformaður, hv. þm. Sigmar Guðmundsson, hinn hv. þm. Ása Berglind Hjálmarsdóttir, forma hér ræður sínar sérstaklega með árás á einn tiltekinn þingmann án þess að láta viðkomandi þingmann vita af því. Ég vil þakka frú forseta fyrir það að Karl Gauti Hjaltason er nú kominn á mælendaskrá hér í störfunum en það er venjan að það sé látið vita af því þegar þingmenn — nú sé ég ekki hv. þingmann Viðreisnar, hann er sennilega farinn úr salnum — ætla sér að veitast að öðrum þingmanni í ræðu sinni. Þetta er bara áframhaldandi þessi sama saga, svona einhvers lags virðingarleysi gagnvart hefðum og venjum hér í þinginu sem á einhverjum tíma í einhvern tíma er hægt að réttlæta með reynsluleysi en á endanum verða þeir sem reynsluna hafa að leiðbeina þeim sem hafa hana ekki. Ég man ekki eftir því að það hafi tveir þingmenn klikkað á þessu í sömu störfunum þannig að ég bið virðulegan forseta að taka nú stjórnarliða á skólabekk og tukta þá aðeins til því að þetta er ekki boðlegt. Á sama tíma og bara meira af sama meiði er sennilega sá lögreglustjóri sem Íslendingar hafa mesta trú á því að sé til gagns á landamærum þjóðarinnar settur af að kröfu dómsmálaráðherra, í óþökk lögreglustjórans sjálfs að því er virðist, þessar fréttir voru að berast. Ef takturinn verður hér í öllu samhengi „ég á þetta, ég má þetta“ hjá stjórnarliðum þá er hætt við að þetta vorþing verði með leiðinlegri brag heldur en í stefndi.
Ég vil biðja virðulegan forseta um að ræða þessi mál, með hvaða hætti þingmenn beina orðum sínum og ræðum að samþingmönnum eins og gerðist áðan í tvígang hjá hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, (Forseti hringir.) sem ætti nú að hafa reynsluna, og hv. þm. Ásu Berglindi Hjálmarsdóttur. Hvorugt þeirra lét hv. þm. Karl Gauta Hjaltason vita af því að hann mætti búast við því að til hans yrði lagt.