Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég vil vekja athygli þingheims á alvarlegri þróun í skipulagi við móttöku flóttamanna, samráðsleysi við sveitarfélög og verulega íþyngjandi einhliða ákvörðunum sem bitna hart á fjárhag sveitarfélaga. Þingmönnum og ráðherra málaflokksins hefur borist ákall frá sveitarfélagi sem ég þekki nokkuð vel til, Borgarbyggð á Vesturlandi. Sveitarfélagið stendur frammi fyrir því að sligast og þurfa m.a. að skerða þjónustu til íbúa. Ég gríp hér inn í erindi frá Borgarbyggð, með leyfi forseta:
„Borgarbyggð stendur frammi fyrir því að fjárhagsaðstoð til flóttamanna er að breyta verulega til verri vegar forsendum í rekstri sveitarfélagsins. Við komumst ekki hjá því að ávarpa það. Borgarbyggð getur ekki setið undir því að flóttamönnum sé safnað saman á Bifröst á kostnað sveitarfélagsins.“
Hér er eitthvað alvarlega að fara úrskeiðis í meðförum ríkis. Frá upphafi hefur öllum verið ljóst að með tilliti til möguleika á atvinnuþátttöku eða þjónustu er Bifröst ekki vænlegur staður fyrir fjölmenna byggð flóttamanna eins og nú er orðið. Vinnumálastofnun og ráðuneyti málaflokksins hafa lagt allt kapp á að koma fólki í húsnæði og það hefur verið að finna á Bifröst. Stór hluti þessara einstaklinga er upp á fjárhagsaðstoð kominn og raunar er fyrirséð að það muni ekki breytast. Sveitarfélagið hefur ekki verið haft með í ráðum um þessa þróun og fær nú sendan reikninginn og reikningurinn fer síhækkandi. Þessi þróun er óásættanleg. Þetta er mjög alvarleg staða og mikilvægt að fljótt verði brugðist við í samræmi við þau fyrirheit að sveitarfélög muni ekki sitja uppi með beinan kostnað við móttöku flóttamanna. Þetta er hvorki fjárhagslegt né félagslegt ástand sem gengur upp. Við þessu ófremdarástandi verður að bregðast og það strax.