Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Ég ætla í dag að bregða kannski aðeins út af vananum undir þessum lið og ræða hér raunverulega störf þingsins. Ég heyri nefnilega svolítið oft núna þessa dagana að ásýnd Alþingis út á við virki fremur kjánaleg. Þegar ég reyni að útskýra gang mála hér inni í þessum sal fyrir fólki og þá leikjafræði sem við þekkjum öll þá botnar fólk ekkert í okkur, kannski skiljanlega. Fólki blöskrar að sjá þjóðþrifamál og mikilvægar úrbætur sitja á hakanum á meðan umræðan reikar oft hér endurtekið áfram; oft mjög góðar umræður en þær eiga það til að vera svolítið endurtekningarsamar. Í nánast öllum öðrum löndum er fastmótaðri menning um umræðu en á Íslandi. Ég vil því beina því til hæstv. forseta og þingheims að velta því fyrir okkur hvort við getum í sameiningu fundið betri leið til að tryggja hér öfluga umræðu á Alþingi, auðvitað með það fyrir augum að minni hlutinn geti sinnt aðhaldshlutverki sínu af krafti en með skýrum ramma. Þannig eykst fyrirsjáanleikinn og umræðan sem birtist í þingsal dýpkar. Það er lýðræðislegur réttur okkar allra, forseti, en þegar almenningur upplifir að þingið sé vettvangur pólitískra leikja frekar en lausna þá hefur það áhrif á traust til Alþingis. Þegar málefnaleg rökræða víkur fyrir taktískum töfum missir lýðræðið slagkraft og tiltrú. Það var mikil nýliðun í síðustu alþingiskosningum. Ég spyr því stjórnarandstöðuna af fullri einlægni: Eru ekki til aðrar leiðir en málþóf og tafaleikir til að halda uppi kröftugu aðhaldi á stjórnvöld hverju sinni? Og já, ég var líka á þessari skoðun þegar við vorum í minni hluta. Tökum samtalið og breytum þessu.