156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:31]
Horfa

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir (M):

Frú forseti. Það var sorglegt að vera hér í þingsal áðan þegar hv. þingmenn meiri hlutans réðust að hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni fyrir það að hann talaði fyrir friði. Hann sagði: Getum við ekki talað fyrir friði? Nei, það var ekki nógu gott. Við áttum að taka afstöðu. Hann minntist ekki orði á hryllinginn sem átti sér stað 7. október í Ísrael. Hann minntist ekki á hryllinginn sem á sér stað á Gaza. Hann minntist ekki á það að það er ekki búið að skila gíslum. Hann var ekki að minnast á það, hann var ekki í þessu sem þið eruð hér, hann var að tala fyrir friði og ég vildi að fleiri í þessum þingsal myndu gera slíkt hið sama. Hv. þm. Sigmar Guðmundsson kom hingað upp og gerði grín að því að hv. þm. Karl Gauti Hjaltason talaði um að við værum þjóð sem seldum fisk. Augljóslega var þetta myndlíking um DNA-ið okkar. Jú, við seljum fisk og það er ein af undirstöðuatvinnugreinum landsins. Ég ætla að segja það líka hér í þessum þingsal að ef fólk ætlar að vera með einhverja stæla og segja að Miðflokkurinn styðji ekki alþjóðasamstarf, þá ætla ég bara að svara á móti, af því að það var verið að tala um þetta út frá því að selja fisk, að það er bara mjög mikið alþjóðasamstarf þegar kemur að því að selja fisk. Þetta er bara eitthvert bull og þvæla. Við styðjum alþjóðasamstarf þótt við viljum ekki ganga inn í Evrópusambandið.

Mig langar líka að fara aðeins inn á það sem hv. þm. María Rut Kristinsdóttir minntist á hérna áðan, um virðingu þingsins. Við erum auðvitað öll í okkar búblu. Hún er kannski þeirri búblu að fólki finnist þetta bara eitthvert leikrit og leikur, en í minni búblu er bara spurt um það: Af hverju mæta stjórnarliðar ekki og svara einhverju í umræðum um veiðigjöld? Það er engu svarað. Kannski myndi þetta þing hækka í virðingu ef stjórnarliðar tækju þátt í umræðunni.