Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Mig langar að gera að umtalsefni þá alvarlegu stöðu sem er að myndast á Húsavík vegna reksturs þeirrar stórverksmiðju sem er þar og stefnir í mikil vandræði. Við þurfum að bregðast við þessu með öllum ráðum. Það er ágætt við þessar aðstæður að rifja aðeins upp sögu þessarar verksmiðju og hvernig hún er tilkomin. Það var mikið átakamál hér á kjörtímabilinu 2009–2013 hvernig ætti að fara með uppbyggingu frekari stóriðju í landinu. Þá lá fyrir beiðni og tilboð öflugs álfyrirtækis um að byggja öfluga og stóra álverksmiðju í Húsavík. En álið er svo eitrað, eins og við þekkjum, þrátt fyrir öll auðæfin sem það hefur gefið þjóðinni og þessir vinstri flokkar, undir forystu Samfylkingarinnar, sem þá var í ríkisstjórn, gátu ekki hugsað sér að samþykkja álver, sem hefði væntanlega tryggt um 500 störf, plús öll afleidd störf, sem við sjáum bara gott dæmi um á Austfjörðum. En nei, þess í stað varð að samþykkja eitthvað annað, einhverja aðra stóriðju og þess vegna var farið út í ákveðna óvissu á verksmiðjugrunni sem við þekktum kannski ekki eins vel. Það fyrirtæki mengar reyndar átta sinnum meira per framleitt tonn en álver. En vinstri flokkarnir gátu ekki hugsað sér álver þannig að ábyrgðin á þessari stöðu liggur að hluta til hjá stefnu stjórnvalda á þessum tíma undir forystu Samfylkingarinnar og með þátttöku Vinstri grænna. Ég ítreka það, virðulegur forseti, að þessi staða er alvarleg. Hún er ekki bara alvarleg fyrir byggðarlagið, hún er líka alvarleg fyrir raforkukaupin sem þetta fyrirtæki stendur á bak við og svo mörg önnur samfélagsleg atriði. Við þurfum að bregðast við með heimamönnum og beita öllum ráðum til að tryggja að þessi starfsemi geti gengið áfram.