156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

Störf þingsins.

[14:38]
Horfa

Jónína Brynjólfsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Nýleg tilkynning PCC BakkaSilicon á Húsavík um hugsanlega rekstrarstöðvun um mitt sumar er gríðarlegt áhyggjuefni. Í dag ríkir veruleg óvissa um framtíð 150 starfa og um 50 milljarða fjárfestingu. Sé miðað við stærð samfélagsins í Norðurþingi jafngildir þetta því að um 600 manns myndu missa vinnuna á Akureyri og um 4.200 í Reykjavík. Mikla rekstraróvissu má rekja til erfiðra markaðsaðstæðna, tollastríðs og samkeppnishalla vegna innflutnings á kísilmálmi á undirverði, einkum frá Kína sem nú framleiðir 80% af heimsframleiðslunni. Verksmiðjan framleiðir gæðavöru með lágu kolefnisspori en það forskot virðist ekki metið til verðs. Við þurfum að velta fyrir okkur samkeppnishæfni Íslands í þessu samhengi. PCC hefur frá upphafi átt gott samstarf við sveitarfélagið og stéttarfélög og verið lykilþáttur í atvinnulífi í Norðurþingi. Það væri samfélaginu þungt áfall ef rekstrarstöðvun yrði að veruleika.

Við þurfum að bregðast við gjörbreyttum rekstrarforsendum frá því að verkefnið hófst árið 2015. Íslensk álver gætu keypt kísilmálm frá PCC í stað þess að kaupa frá kolakyntum verksmiðjum þar sem mannréttindi eru jafnvel fótum troðin. Ísland þarf að krefjast upprunavottorða og styðja með virkum hætti við græna og ábyrga framleiðslu eins og þá sem PCC stendur fyrir. Rétt er að benda á að PCC hefur nýlega kært til fjármála- og efnahagsráðuneytisins undirboð á kísilmálmi frá Kína og krefst viðskiptaverndar. Sambærilegra aðgerða hafa ESB og Bandaríkin gripið til. Þá má benda á að í Noregi njóta sambærilegar verksmiðjur sérstaks afsláttar af raforku og annarra hvata sem tryggja rekstrargrundvöll þeirra. Ég hvet ríkisstjórnina til að taka á málinu af fullri alvöru, með sömu alvöru og sama hætti og ef um 4.200 störf í Reykjavík væri að ræða. Ábyrgðin er okkar allra.