Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í dag hófst almennt útboð Íslandsbanka en ekki er langt síðan að við greiddum atkvæði um fyrirkomulagið hér í þingsal. Það var samþykkt og ef ég man rétt með öllum greiddum atkvæðum enda nánast óbreytt frumvarp frá því að síðasta ríkisstjórn lagði það fram, en þá var reyndar andstaða meiri hér í þingsal. Þá greiddu þingmenn Samfylkingar og Flokks fólksins atkvæði á móti en Viðreisn sat hjá. Nú hins vegar samþykktu það allir, þó svo að það hafi komið fram í atkvæðaskýringum hjá formanni Flokks fólksins að hún og flokkurinn hennar væru algerlega á móti sölu hluta ríkisins í Íslandsbanka en ætluðu engu að síður að greiða götu málsins hér í þinginu og samþykkja að grilla gullgæsina, eins og hæstv. ráðherra komst að orði í umræðunni um málið á síðasta þingi. Nóg um það, virðulegur forseti, en það er þetta með prinsippin.
Mikil gagnrýni kom fram á fyrri sölu og eitt af því sem var mikið gagnrýnt var söluverðið, það verð sem var ákveðið að bjóða í útboðinu til almennings og fjárfesta. Notast er við meðalgengi bréfa í bankanum yfir 15 viðskiptadaga fyrir birtingu útboðslýsingar og er það 112,17 kr. Síðan er veittur 5% afsláttur og þannig verður útboðsgengið til. Samkvæmt útboðsskilmálum er því verð í tilboðsbók A fastsett í 106,56 kr.
Virðulegur forseti. Er þetta tíminn til að setja hlutina á sölu? Ég get ekki svarað því, því verða aðrir að svara og aðrir að bera ábyrgð á. Ég vil þó benda á að dagslokagengi í gær, degi fyrir útboðið, var 114,5 kr. og afslátturinn því tæplega 7% miðað við gengi bréfanna í gær. Í síðasta útboði var verðið m.a. gagnrýnt af þeim sem nú setja bréfin á sölu en þá fengust 117 kr. á hlut og afslátturinn 4,1% miðað við markaðsgengi. Því spyr ég, virðulegur forseti: Er þetta rétti tíminn? Erum við að fá besta verðið?