156. löggjafarþing — 41. fundur, 13. maí 2025.
ummæli um þingmann í störfum þingsins.
Virðulegi forseti. Við nýir þingmenn höfum nú verið svolítið til tals í dag og ég ætla að leyfa mér að segja að sumt getum við undirbúið okkur fyrir, sumt rekum við okkur á og lærum með því að gera. Ég var ekki með þá vitneskju að það tíðkaðist að láta hv. þingmenn vita ef maður ætlaði að vitna í þeirra orð og mér þykir leitt að hafa gert það með þessum hætti og komið þannig aftan að hv. þm. Karli Gauta Hjaltasyni. En orð mín standa engu að síður.