veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir framsöguna. Það vekur strax fyrstu spurninguna sem ég sagði, að ég þakkaði hv. þingmanni fyrir framsöguna. Hvernig stendur á því að hér er ekki framsaga hæstv. ráðherra? Er það vegna þess að hæstv. ríkisstjórn ætlar að forðast samráð við allt og alla? Ferill mála, þegar þau koma frá ráðuneytum, er yfirleitt þannig að skylda er að þau fari í samráðsgátt. Yfirleitt er ætlast til þess að þau séu þar lengur en í sjö daga eins og veiðigjaldahækkunin var. Hér er algjörlega hoppað yfir það.
Hver er ástæðan fyrir því að hæstv. ráðherra flytur ekki þetta mál heldur meiri hluti nefndarinnar? Þegar sagt er að það sé meiri hluti nefndarinnar þá vekur líka eftirtekt að formaður hennar, hv. þm. Sigurjón Þórðarson, er ekki einn af framsögumönnum. Því hlýt ég að spyrja hv. þingmann hverju það sæti að hvorki hæstv. atvinnuvegaráðherra né formaður atvinnuveganefndar treysta sér til að hafa framsögu eða vera framsögumenn í þessu máli.