156. löggjafarþing — 41. fundur,  13. maí 2025.

veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.

298. mál
[15:11]
Horfa

Frsm. meiri hluta atvinnuvn. (Lilja Rafney Magnúsdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það vill svo til að sú sem hér stendur nýtur góðs trausts til að vera framsögumaður í málinu og þarf ekki að eiga það undir einhverjum öðrum. Við þekkjum það að þetta mál, sem var sambærilegt nema verið var að setja grásleppukvóta, fór ekki í gegnum ráðherra heldur flutti hæstv. atvinnuveganefnd það á þeim tíma. Ég get spurt hv. þingmann á móti hvað hafi valdið því?

Þetta mál hefur oftar en einu sinni komið til umfjöllunar á Alþingi og fengið mikla umræðu. Það er löng hefð fyrir því að meiri hluti nefnda flytji mál og velji sér framsögumann. Hv. þingmaður spyr hvers vegna hv. þm. Sigurjón Þórðarson er ekki á málinu. Hann var ekki viðstaddur þegar málið var tekið út en varamaður inni eins og fram kom. Þetta er allt eins og best verður á kosið. Ég treysti því að hv. þingmaður treysti þeirri sem hér stendur til þess að vera framsögumaður í þessu máli, enda þekki ég það mjög vel frá fyrri tíð.