veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands og stjórn fiskveiða.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég get spurt hv. þingmann á móti: Hvaða áhrifamat lá fyrir í þessu máli, sem er sambærilegt nema að því leyti að verið var að hlutdeildarsetja grásleppu? Eins og við vitum var það mál ekki sett í samráðsgátt Stjórnarráðsins. Þetta mál hefur verið mikið til umfjöllunar. Auðvitað verður fjallað um það í atvinnuveganefnd og kallað eftir umsögnum.
Varðandi fjölda báta þá þekkjum við það að grásleppuleyfi ganga kaupum og sölum. Það þekkja það allir. Það ætti hv. þingmaður að þekkja ósköp vel. Nú er verið að færa veiðistjórn í fyrra horf að ósk þeirra fjölmörgu grásleppuveiðisjómanna sem hafa talað fyrir því. Meira að segja hugarfar þeirra sem voru áhugasamir um að fá grásleppu í kvóta hefur breyst í þeim efnum. (Forseti hringir.)